Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Síða 32

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Síða 32
rauninni þar uppi á fjallinu ásamt leið- sögumanni, án hans verður ekki komizt af.“ „Ég ætla að klífa einn tind. Fyrir mig er aldrei of mikil áhætta. Ég hef alltaf yfirunnið þær.“ Hinir þróttmiklu andlits- drættir Mergentheims sýndu, að þetta voru ekki innantóm orð og kokhreysti. Hann var augsýnilega maður, sem ekkert hræddist, en mundi mæta hverri hættu með ískaldri ró. ísabella starði undrandi á hann meðan hún borðaði súpuna með skeið, sem þjónn- inn hafði fært henni. Fyrir framan hana stóð hinn girnilegasti kjötréttur, sem hún gaf þó ekki hinn minnsta gaum. Hinn ungi verkfræðingur vakti nú meiri áhuga henn- ar en nokkuð annað. Það sem hún dáðist að nú þegar hjá Michael, hafði þessi mað- ur allt til að bera í enn ríkari mæli. En hann hafði auk þess annað sem hún girnt- ist: álit, stöðu og fé, að minnsta kosti var svo að sjá. Hvers virði var leiðsögu- mannsbjálfi andspænis slíkum manni? Hann hafði unnið hana með áhlaupi, og henni líkaði það vel. í fyrsta skipti kynnt- ist hún manni, sem var svo miklu sterk- ari en hún. En ísabellu grunaði ekki, hversu djúpt Michael var sokkinn. Hvert orð sem hún sagði var sannleikur fyrir honum. Hann hugsaði aðeins um hana og hvenær hon- um auðnaðist að lykja hana í örmum sín- um. Augnaráð hennar hafði heillað hann svo mjög, að hann hefði yfirunnið hvaða hindrun sem var til að fá að líta aftur og aftur í þessi dulúðgu augu. Þannig hafði Michael, þótt hann héldi sig í nálægð hótelsins allan daginn, enga möguleika til að ná tali af henni. Árang- urslaust beið hann til kvölds. Óróleiki hans jókst með hverri stundinni sem leið. Michael gat ómögulega skilið af hverju hún kom ekki. Hún hafði sjálf talað um ást sína og smeygt sér í arma hans og tal- að um sameiginlega framtíð. Honum hafði fundizt hann vera konungur þarna í ásýnd klettanna og skriðjökulsins, eiga þetta allt og hina fegurstu stúlku. Hann faldi sig bak við hjall og beið þess að Mercedesbíll- inn kæmi með konuna, sem hann elskaði. Allt í einu heyrðist í flautu, og bíll nálg- aðist á fleygiferð. Isabella sat undir stýri og við hlið hennar Mergentheim. Prófess- orinn sat aftur í. Hann virtist sofa, sem ekki var að furða eftir þann hita sem verið hafði um daginn. Isabella stöðvaði vagninn og stökk út. Samstundis var Mergentheim kominn að hlið hennar. Hann greip hönd hennar beygði sig yfir hana og þrýsti á hana kossi. Sigurbros lék um hálfopnar varir stúlkunnar. „Hvenær fæ ég að sjá þig aftur, ástin?“ spurði Mergentheim áköf- um rómi. „Ég geri ráð fyrir að koma til kvöldverðar eftir hálftíma. Vonandi hef- ur kokkurinn eitthvað gott upp á að bjóða.“ Augu hennar brostu við honum. „Þú ert dásamlegur Lutz“, sagði hún. „Vonandi heldur þú áfram að álíta það.“ Hann kunni að umgangast konur eins og ísabellu. Aðdráttarafl hennar fékk hann ekki staðizt. Michael hafði heyrt þetta stutta samtal. ísabella mundi verða ein í herbergi sínu í hálftíma. Honum mundu nægja fáeinar mínútur til að segja það sem honum bjó í brjósti. Hann þrýsti sér í skyndi upp að skúrveggnum, hljóp yfir litla kálgarðinn og skauzt síðan fyrir hornið og inn um aðaldyr hótelsins þar sem örfáar hræður stóðu og þaut upp stigann upp á fyrstu hæð. Þar faldi hann sig bak við einn þvottaskápinn, sem stóð á rúmgóðum gang- inum. Hann varð að bíða þar til ísabella væri gengin til herbergis síns, því nú var það ábyggilega lokað. Hann vildi heldur ekki ryðjast inn eins og innbrotsþjófur, þótt hann væri altekinn þjáningu og hug- aræsingi. Dyrnar lokuðust á eftir ísabellu. Jafnskjótt stökk Michael fram úr fylgsni sínu og barði að dyrum. Hann beið þó ekki eftir að hún segði honum að koma inn. Andartaki seinna stóð hann fyrir framan hana, náfölur af bræði. Hún var rétt búin að taka ofan hattinn, og sneri sér nú að honum! Michael!“ hrópaði hún skelfd. „Já, það er ég. Ég sá þig í dag með verk- fræðingnum við vagninn. Þú horfðir á hann eins og ... hvernig á ég að koma orð- um að því. ...“ Hann leitaði eftir orðum, 32 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.