Heimilisblaðið - 01.01.1964, Síða 38
þá er kominn tími til að maður kenni henni
að setja í hárið og að hún læri sjálf að
halda því fallegu.
Hárþvottur með góðu shampooi er að
sjálfsögðu mjög mikilvægur og einnig það
að hárið sé vel burstað. En skilyrði fyrir
því að hárið geti farið vel er fyrst og
fremst góð og rétt klipping. Það er einnig
mikilvægt fyrir fallegt hár, að barnið fái
heilnæma og rétta fæðu, þá verður hárið
gljáandi, lifandi og mjúkt.
Hér fylgja myndir af fjórum stúlkum á
mismunandi aldri og með ólíkar hár-
greiðslur, sem allar eru fallegar.
Fyrsta myndin er af stúlku, sem er orð-
in 12 ára og nennir þess vegna að hafa
dálítið fyrir hárinu, og til að fá það til að
snúa út að neðan þá rúllar hún það stund-
um upp á stórar hárrúllur. Hárið er að-
eins túperað aftan við hárbandið. Hinar
myndirnar þurfa ekki mikilla skýringa
við, en það er sameiginlegt með þeim öll-
um að það er mjög gott að bursta undir
hárið á meðan að það er blautt, þá kem-
ur meiri fylling í það.
Úr því að við erum að tala um hár-
greiðslur þá læt ég fylgja myndir af slétt-
um en mjög fallegum hárgreiðslum og það
er það sama sem gildir um þær og hár-
greiðslur barnanna: góð klipping og hár-
burstun og ofurlítil túpering. Á þessum
myndum er sýnt hvernig breyta má ein-
faldri og sléttri daggreiðslu í glæsilegri
kvöldgreiðslur.
FORN KÍNVERSK SPEKI
Gerðu áætlanir fyrir erfiðisdagana, þegar
tóm gefst til.
Sé um þrjá vegi að ræða, þá taktu þann í
miðið.
Skoðaðu peninga sem óhreinindi, en rétt-
lætið sem gull.
Heimur kunningja, en svo fjarska fárra
vína.
Nálar er þörf svo þráð megi draga.
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
SKULAGOTU 20 - SIMI 11249
38
HEIMILISBLAÐIÐ