Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Qupperneq 26

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Qupperneq 26
 Footsy virti þau fyrir sér andartak, sagði síðan: „Jæja, ég fer þá. Ég geri jafnvel ráð fyrir, að einhver taki mig upp í, svo ég þurfi ekki að ganga alla leið. Og ég býst við að geta verið kominn hingað aftur snemma í fyrramálið." Hann lagði af stað eftir þjóðveginum og gekk röskum og ákveðnum skrefum eins og þeir menn gera, sem eiga takmark fyrir höndum. Ogden og Peggy klifruðu upp í ekils- sætið og fundu hitabrúsa með heitu kaffi og pakka með samlokum af óvenjulegri þykkt. Ogden Pieter tók til matar síns af mikilli lyst. Hann var með hausverk og yfir sig þreyttur. Þegar hann hafði lokið við að snæða, hallaði hann sér aftur, lokaði augunum og sofnaði. Peggy horfði á hann og brosti. Kvöldið var friðsælt. Eftir skamma stund var tungl á lofti yfir trjákrónunum, og stjörnurnar skinu. Þá hagræddi Peggy sér og bjóst til að sofna. Allt frá bernsku hafði hún vanizt því að treysta bezt sjálfri sér, og hún hafði vanizt því að horfa björtum aug- um á tilveruna, enda þótt hennar eigið lif hefði alls ekki verið neinn dans á rósum. Það var undarleg tilviljun, að þau Ogden skyldu hittast, því að erfitt var að hugsa sér tvær mannverur, sem áttu jafn fátt' sameiginlegt í lífsreynslu, skapgerð og við- horfum. Peggy sat vakandi langa stund, en að lokum seig á hana svefn. Hún vaknaði við hækkandi sól. Sökum hallans á bílnum, var einnig halli á ekilssætinu, þannig að um nóttina hafði hún runnið til og hvíldi nú með sinn rauðgullna koll þétt upp við brjóst Ogdens Pieters. Handleggur hans hafði í svefninum leitað yfir axlir hennar. Hvernig hann hafði komizt þangað, það vissi hvor- ugt þeirra, og þau spurðu einskis. Ogden Pieter lauk upp augum, og þrátt fyrir óvenjulegar stellingar, sem hann hafði sof- ið í, leið honum ágætlega. Þau gengu að vatnsbóli úti á enginu og þvoði sér í ferskri lindinni. Peggy lánaði honum hárgreiðu. Hann nuddaði um hök- una á sér og fann sér til óþæginda skegg- broddana, — en nú voru hvorki herbergis- þjónn né rakari á næstu grösum. Þau drukku leifarnar af kaffinu og átu það sem eftir var af samlokunum, og höfðu lokið þessu áður en Footsy Mertz kom akandi í bíl ásamt vélamanni, með auknar matar- birgðir og nýjasta morgunblaðið. Peggy leyfði Ogden að lesa blaðið fyrst, og hann þurfti ekki að leita lengi að fréttunum af sjálfum sér, því að þær stóðu feitletraðar á forsíðu. Lík hans hafði án alls efa þekkzt. Sjálfur einka-lögfræðingur hans, Benjamín gamli Goodrich, hafði úrskurðað, að um lík hans væri að ræða. En Ben frændi hafði ekki látið sér það nægja. Við lögreglu og blaða- menn hafði hann að auki látið uppi ýmsar ,,staðreyndir“ sem verið gætu orsök að sjálfsmorði því, sem margir álitu, að þarna hefði átt sér stað, enda þótt réttarlæknir- inn teldi af og frá, að um sjálfsmorð gæti verið að ræða í þessu tilfelli. „Það þjónar engum hagnýtum tilgangi," lét hr. Goodrich ummælt, „að leyna því, hvernig komið er um auð Van Staels- ættarinnar. Hann er bókstaflega enginn lengur. Hann hefur horfið og eyðst um leið og ættin sjálf hefur dáið út. Ef Ogden Piet- er Van Stael hefði verið á lífi í dag, hefði hann verið bláfátækur maður. Þótt ég segi bláfátækur, á ekki aðeins við, að tekjur hans myndu hafa minnkað stórlega, heldur á ég beinlínis við, að tekjur hans myndu ekki hafa verið neinar. Ekki einn eyrir. Auðævin því miður öll farið í að viðhalda fyrirtæki, sem Van Stael eldri grundvallaði, en hefur nú lifað sjálft sig.“ Ogden Pieter starði fram fyrir sig á um- heim, sem skyndilega var orðinn honum kaldur og óhugnanlegur. Um varir hans myndaðist grettubros, en það bros var án allrar gleði. Nú var ekki um það að ræða lengur að hafa ofan af fyrir sér í þrjá mánuði til þess að vinna veðmál. Þeir þrír mánuðir voru orðnir að heilli mannsævi. Hann sparkaði dagblaðinu frá sér og varð um leið litið á skóna sína. Það var eins og þessir kostbæru skór fyrir augum hans gerðu honum enn betur grein fyrir því, sem gerzt hafði. Einir skór voru allt og sumt sem eftir var af yfirgnæfandi auðlegð hans. 114 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.