Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Side 28

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Side 28
„Við sendum ekki neitt skeyti,“ sagði þá Ogden Pieter. „Þér eruð anzi dularfullur og erfitt að reikna yður út,“ sagði Peggy í ásökunar- rómi. „Ég las einu sinni um fólk, sem hafði orðið fyrir hörmungum í jarðskjálfta,“ svaraði Ogden-Pieter. „Þar stóð, að það hafði misst aleigu sína. Allt, sem það hafði átt, hafði jörðin gleypt. Það átti ekki ann- að en fötin sem það stóð í.“ „Nú, og hvað meinið þér með þessu?“ spurði Peggy. „Það er engu líkara,“ svaraði hann, „en ég sé einskonar fórnarlamb jarðskjálfta. Og það er einmitt þess vegna, sem ég sendi ekki símskeyti." „Um hvað er hann eiginlega að þvæla?“ spurði Footsy. „Við komumst áreiðanlega að því, ef við sýnum honum þolinmæði,“ sagði Peggy. „Haldið áfram þar sem þér hættuð, Pieter.“ „Þar til fyrir skömmu,“ hélt Ogden Piet- er áfram, „áleit ég þetta atvik smá-ævin- týri, sem brátt myndi sjá fyrir endann á. Ég þóttist vita, að allt myndi lagast óðara er ég kæmist í samband við vini mína.“ „En nú?“ spurði Peggy. „Ef ég sendi vinum mínum símskeyti núna,“ svaraði hann, „þá myndi ég þurfa að senda það sem betlari. Ég hefi hugsað margt siðastliðinn hálftíma. Ég hef verið að hugsa um mann, sem ég þekkti, og missti aleigu sína.“ „Og hvað með hann?“ spurði Peggy. „Ég myndi ekki kæra mig um að líkjast honum,“ svaraði Ogden Pieter. — „Vinir hans hafa hjálpað honum og stutt hann á allan hátt. Að lokum var hann orðinn plága á þeim, einskonar sníkjudýr, sem þeir bölv- uðu og óskuðu að væri farinn veg allrar veraldar.” „Hvers vegna eruð þér að segja okkur allt þetta?“ spurði Peggy. „Þeir fáu peningar, sem ég á hjá hr. Mertz, er allt og sumt sem ég á,“ svaraði hann. „Þess vegna get ég ekki hringt í neinn eða sent skeyti, nema sem beininga- maður. Ég er eins og sá, sem hefur orðið fyrir jarðskjálfta — og á ekki annað en það, sem ég stend í.“ VI. MERTZ OG AMMA HANS „Það lítur út fyrir, að það hafi gerzt nokkuð skyndilega," sagði Peggy. „Skyndilega? Ég hefði átt að láta mér detta í hug, að það stefndi að þessu. Á dög- unum var ég á skrifstofu mannsins, sem ráðstafaði öllum hlutum fyrir mig. Hann talaði svo undarlega við mig. Ég hélt hann væri að tala meiningarleysu. En ég vildi óska, að hann hefði sagt mér sannleikann eins og hann var og ekkert dregið undan.“ „Þér komið mér annars ekki fyrir augu sem sá maður, sem er vanur að hafa mikið fé handa á milli,“ sagði þá Footsy tor- trygginn. Ogden Pieter svaraði þessu ekki. „Einn af vinum mínum veðjaði um það við mig, að ég gæti ekki haft ofan af fyrir mér um þriggja mánaða skeið, án þess að láta uppi hver ég væri og fá peninga að láni. Ég átti nefnilega að vinna fyrir mér sjálf- ur.“ Hann brosti beisklega. „En ég tók veð- málinu. Tímabilið hefur bara lengzt. Þessir þrír mánuðir hafa lengzt upp í lífstíð. Og nú myndi ég ekkert græða á því að hverfa heim aftur og lifa á vorkunnsemi vina minna.“ Hann þagnaði stutta stund, eins og honum kæmi eitthvað til hugar. „Auk þess er ég dáinn,“ sagði hann. „Það mun enginn spyrja um mig frekar, því að ég er ekki lengur talinn í lifenda tölu.“ „Haldið þér, að hann sé alveg heilbrigð- ur í kollinum?" spurði Footsy. Ogden Pieter stóð og starði fram fyrir sig, og svipur hans var þrjózkufullur. — Peggy létti við að sjá það, að hann gat verið einbeittur og ákveðinn á svip. Fram til þessa hafði hún aðeins séð hann stúr- inn og ráðalausan. Nú var eins og hann tæki á og yrði einstaklingur með persónu- einkenni og sjálfstæðan vilja. „Ég er Pieter Van,“ sagði hann upphátt við sjálfan sig, rétt eins og hann hefði al- gerlega. gleymt nærveru þeirra hinna. „Héðan í frá er ég Pieter Van og enginn annar.“ „Hann er bilaður í toppstykkinu," sagði Footsy. „En jafnvel þótt þér séuð Pieter Van,“ 116 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.