Heimilisblaðið - 01.05.1966, Síða 36
Vi(% sem vinnum
eldhússtörfin
Ef þér eigið nokkrar
eggjahvítur . . .
Það kemur stundum fyrir að maður eigi
nokkrar eggjahvítur afgangs, og þær er
hægt að nota í gómsæta rétti, kökur og
ábæta. Þess ber að geta að eggjahvítur
geymast í lokuðu íláti í kæliskáp í 2—3
vikur og þær þeytast vel, en eggin verða
auðvitað að hafa verið alveg ný. Hér eru
nokkrar uppskriftir, sem allar eru ætlaðar
fyrir 4 persónur.
Buffrúlla.
3—4 steikt hakkabuff með brúnni sósu
og brúnuðum lauk,
2 msk. pickles,
2 msk. tómatsósa,
% tsk. karrý,
1 blómkálshöfuö,
1 tsk. salt,
ca. 75 gr. smjör eða smjörlíki,
Skerið buffkökurnar í þykkar sneiðar
og blandið þeim, sósunni og kryddinu í
pott. Skiptið blómkálinu í hendi og sjóðið
það í ofurlitlu vatni, smjöri og salti.
Hitið buffblönduna og þynnið hana e. t. v.
með ofurlitlu af blómkálssoðinu. Steikið
um leið eggjahvítuna á stórri pönnu
með nægu brúnuðu smjöri. Hellið hvít-
unum bara yfir alla pönnuna og látið þær
stifna við hægan hita og verða ljósbrúnar
að neðan. Leggið buffkássuna og blóm-
kálið á og rúllið öllu saman og ýtið rúll-
unni yfir á heitt fat.
Svepparúlla.
% kg. sveppir (champignon),
50—75 gr. smjör,
1 pakki djúpfryst spinatblöð
eða 1 kg af nýjum,
1 msk. hveiti,
ca. 1 dl. rjómi,
salt,
6—8 eggjahvítur.
smjörlíki.
Hreinsið og þerrið sveppina og skerið
þá í sneiðar og ristið á pönnuna í smjöri,
hitið spínatið, sáldrið hveitinu yfir og bæt-
ið rjómanum smátt og smátt út í. Látið
spínatið sjóða og saltið það mátulega. —
Steikið eggjahvítuna hægt á pönnunni.
Látið spínatið og sveppina á og hellið öllu
saman.
Eggjahvítu-hræra.
6 eggjahvítur,
6 msk. rjómi,
1 msk. olía,
% tesk. salt, ofurlitill pipar,
30—40 gr. smjör á pönnuna.
Þeytið þetta allt léttilega saman. Bræðið
ofurlítið smjör á pönnu og látið eggja-
hvítumassann stífna við hægan hita, hrær-
ið varlega einu sinni eða tvisvar með
flatri trésleif. Eggjahvítuhræra er mjög
góð með pylsum, reyktri síld eða skinku.
Ef þið eigið graslauk, þá sáldrið honum
yfir.
Léttir kvöldréttir.
Eggjakaka a la pizza.
6—8 eggjahvítur,
ofurlítið smjör,
2—3 tómatar,
1 dós af beinlausri síld,
Litlir teningar úr ca. 150 gr. af mildum osti,
steinselja (persille). ofurlítið salt og pipar.
Þeytið eggjahvíturnar létt saman, án þess
að þær verði að froðu. Hellið þeim út á
heita pönnu meö brúnuðu smjöri. Leggið
tómatsneiðar, síld og ostateningana ofan
á, þegar eggjahvíturnar eru að byrja að
verða stífar. Stráið síðan steinselju út á
og sömuleiðis salti og pipar. Eggjakakan
er framreidd heit, með brauði.
124
HEIMILISBLAÐIÐ