Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Qupperneq 41

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Qupperneq 41
Kalla' og Palla þótti næstum jafn leiðinlegt að Þvo tau og vaska upp. Og þar sem þeir eru vanir að draga allt á langinn, sem gera þarf, verður starfiö ennþá erfiðara. Sjáið þið nú bara hrúg- una, sem hlaðizt heíur upp! „Þetta er nú meira en hægt er að heimta af tveim litlum böngsum", mótmælir lati Paili og stingur höndunum í vas- unn. „Satt segir þú, Palli, við skulum heldur fara mn og hlusta á veðurfréttirnar í útvarpinu", sting- ur hinn jafnlati Kalli upp á. „Horfurnar eru góð- ar“, tilkynnir hann, „við verðum að drífa okkur og hengja tauið upp“. En það var svo erfitt, að þeir þurfa að hvíla sig á eftir og gæða sér á sóda- vatni, meðan þeir fylgjast af eftirvæntingu með veðrinu. Ekki líður á löngu þar til komin er helli- skúr, sem þvær allt tauið fyrir þá. „Það borgar sig að nota heilann", segir Kalli glaðlega við hinn ánægða Paila. Dýrin hafa beðið Kalla og Palla að hjálpa þeim an finna nöfn á króana sína, því það sé svo erfitt a° finna mörg nöfn. „Allt í lagi“, segja birnirnir. yrst kemur frú Strúts með ungana sína tvo. — ■’Hans og Gréta", segir Kalli hiklaust, ,,og börn lonynjunnar köllum við Leó, Trínu og Alexander. Hrigfrú Kengúru köllum við Matthildi". — Palli skrifar nöfnin niður, ef einhverjir skyldu gleyma þeim. Allt gengur þetta ljómandi vel þangað til herra og frú Kanína koma með sinn stóra barna- hóp. „Svona mörg nöfn eru alls ekki til“, segir Kalli, „hér verðum við að grípa til annarra ráða, ég mála númer á þau!“ Þegar hann var kominn upp í nr. 21 varð hann að hætta, því þá var máln- ingin búin.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.