Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Síða 42

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Síða 42
„Sriautið í burtu, óþokkarnir ykkar!" hrópar Kalli og bandar að storkunum, sem ekki geta látið í friði rauðu melónurnar bangsanna. — Þær eru nefniiega of góðar á bragðið. „Hér þarf góðra ráða við. — Við skulum leggja höfuðið í bleyti", segir Kalli. — Skömmu seinna dettur þeim snjall- ræði í hug. í snatri ná þeir sér i rauðar blöðrur, sem þeir koma fyrir útblásnum milli melónanna, og þegar storkarnir koma aftur og höggva með nefinu í þær, springa þær með hvellum miklum, svo að fuglarnir hrökkva við óttaslegnir. — „Kalli og Paili hafa galdrað melónurnar sínar. Við skul- um flýta okkur burtu". Loksins hafa Kalli og Palli frið með melónurnar sínar. Kalli og Palli hafa eignazt nýtt stækkunargler. Með því geta þeir kveikt í pappír og visnu lauf- blöðunum, sem þeir ættu þó að láta ógert, því að slikt getur valdið tjóni. Brátt fá þeir þó leiða á þessu. „Við skuium koma heim og finna upp á einhv'erju nýju“, segir Palli. „Ágæt hugmynd", anzar Kalli, „en eigum við ekki fyrst að fá okkur lúr“, stingur hann upp á og teygir sig letilega með stækkunarglerið í hendinni. Samstundis heyr- ist ógurlegt öskur á bak við þá. Það kemur í ljós, að Kalli hefur brennt ljónið, þar sem það lá og svaf. Kalli og Palli fengu um annað að hugsa en að hvíla sig, þegar Ijónið hentist í áttina til þeirra.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.