Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1977, Síða 4

Heimilisblaðið - 01.11.1977, Síða 4
Við trúum ekki á eilíft líf vegna þess að við séum fær um að sanna það; en við gerum tilraun til að sanna það vegna þess að við getum ekki komist hjá því að trúa á það. Og einmitt sú eðlilega til- finning, að maður búi yfir sannleikanum, er einhver gleggsti vitnisburðurinn. Þeg- ar Guð ætlar sér eitthvað með okkur, þá gróðursetur hann hugmyndina í tilfinn- ingu okkar. Þráin eftir eilífu lífi er svo algild í sköpunarverkinu, að naumast er hægt að yppta öxlum við henni í kæru- leysi. Þetta, sem hlýtur að spegla vissan hlut veruleika tilveru okkar. Stór sannindi sem þessi, trúir maður ekki á sökum þess eins, að hægt sé að rökstyðja þau eða sýna með dæmum — þetta er trú og tilfinning, sem í sjálfri sér er raunveruleiki. Innsæi er mikilvæg- ur þáttur í vísindalegri öflun sannleika. Franski heimspekingurinn Henri Bergson lét svo um mælt, að þegar rannsóknar- menn gætu ekki komist lengra eftir braut vísindalegra sannana, þá létu þeii' inn- sæi sitt iðulega hjálpa sér við að þokast áfram í áttina að sannleikanum. Vísindalegar rannsóknir styðja í senn innsæi okkar og trú. Hlutveruleikasjónar- miðið eitt í skilningi á alheiminum er smám saman að þoka um set. Vísindin eru farin að viðurkenna þennan óskiigrein- anlega, andlega kjarna alls, sem lífið inni- heldur. Eitt sinn átti ég orðræðu við frú T. Edison um afstöðu manns hennar til lífs- ins eftir dauðann. I Ijós kom, að hinn frægi uppfinningamaður trúði því af- dráttarlaust, að sálin lifði líkamann; að hún yfirgæfi hann aðeins við llíkams- dauðann. Þegar Edison var að dauða kom- inn, varð læknir hans þess var, að hann var að reyna að segja eitthvað. Hann laut niður að honum og heyrði greinilega, að hinn deyjandi maður sagði: „Það er ákaf- legafagurt þarna fyrir handan“. Þau fyrirbæri sem orðið hefur vart v$ í vitnisburðum dayjandi fólks um það> sem Biblían kallar „dal dauðaskuggans“> sanna, að fyrir handan tekur við bæ^i líf og fegurð. Iðulega veldur sjúkdómu1-' inn vissulega þjáningu, og leiðin að n&' lægum líkamsdauða getur verið ærið erfi^ En á sjálfri andlátsstundinni „hefjumst við upp af voldugri friðar-bylgju“, eins og einn þekktur læknir hefur komist að orði. Hjúkrunarkona ein, sem orðið hefu1' vitni að dauða margra manna, sagði eitf sinn við mig: „Margir sjúklinga min1111 hafa á dauðastundinni reynt að lýsa ÞVI sem. þeir sæju“, og iðulega hafa þeir tala^ um dásamlegan bjarma og hljómJist’ Nokkrir segjast hafa séð andlit, sem þei1' hafi þekkt. Oft var ólýsanleg undrun 1 augnaráði þeirra“. Sjálfur var ég eitt sinn staddur hja vini mínum, sem var að því kominn ^ skiljast við. Þegar skuggar dauðans tóÞ1 að lengjast, sagði hann allt í einu við sor sinn, sem sat við rúmstokk hans: „Eg se falleg hús. Það er Ijós í glugga í ein11 þeirra — ljós sem bíður eftir m.ér. ÞetF er ákaflega fallegt“. Skömmu síðar vM hann látinn. Síðar sagði sonur hans við mig: „PahhJ var vísindamaður, og hann lét sér aldre’ um munn fara neitt, sem ekki var sta^' reynd. Sú ævilanga venjufesta breytti^ ekki — pabbi sagði aðeins frá því seF hann vissulega komst að raun um“. Læknir einn sagði frá því, er hann sí! við hlið deyjandi manns og hélt í hÖP' honum: „Ég hlýt að hafa haldið fasta’ en ég gerði mér grein fyrir“, sagði ha11^,' „því að allt í einu sagði hinn deyja11 1 maður nokkuð merkilegt:“ „Haltu ^ ekki föstum.. . Það er svo óendanle^‘ fagurt þarna álengdar!“ Sami læknir segir einnig frá vini sl!l um sem var að dauða kominn og lét ha ‘ t “ÍTl J HEIMILISBLAÐ 10 184

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.