Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1918, Page 84
einum er athvarf, því hvergi finn eg annarsstaðar hvild né
frið. Svala þú mér á ódáinsveigum orðs þins, sem eitt fær
veitt sæln eilífðarinnar, eins og guðmóðurinn, er fyllir hjartað
heilagri gleði. Sælir eru þeir, sem Ijós þitt Ij'sir, þótl ekki sé
nema eitt augnablik, og þeir, sem geta komist i samræmi
við þig. Hvernig fæ eg komist um úthaf jarðlífsins? Hvar
er leiðin? Eg veit það ekki. Frelsa þú mig frá sorg og sárs-
auka heimsins.«
Dulefnafræðingurinn (alkemistinn) og eldspekingurinn svo-
nefndi, Pnracelsus, var eins og fleiri andleg mikilmenni bæn-
rækinn á kristinna manna vísu. l}að er sagt að þessi bæn
sé eftir hann:
»Ó, þú heilagi andi sannleikans, hvíl þú yfir mér og láltu
mig skynja það sem ég skynja ekki. Ivenn mér það, sem ég
veit ekki. Gef mér það, sem ég hef ekki. Gef þú mér þann
mált, sem þú dvelur i. Svala þú hjarla minu með hinum
sjöföldu gjöfum þínum, og lát þú þinn guðdómlega frið
hvíla yfir mér. Hafðu taumhald á huga minum, svo að eg
geti lifað eins og mér ber og rækl skyldur mínar gagnvarl
liinum æðsta, mönnunum og öllum hlutum.«
Hinn merki umferðaspámaður, Apolloníus frá Tyana, sem
kallaður hefur verið »Kristur heiðingjanna«, bað þessarar
stutlu og gagnorðu bænar:
»Unnið mér, ó, guðir, að eignasl lítið og einkis þarfnast.«
Hinn nafnkunni og guðelskandi nninkur Tómas á Kempis
bað iðulega þessarar bænar:
»Upplýs mig, ó, góði Jesús, með Ijóma hins innra Ijóss og
lirck þú alt myrkur úr hjarta mér. Varna þú þess að ég
eyði tímanum til ónýtis, og ger þú að engu þær freistingar,
sem á mig slríða. Strið þú með mér gegn hinum óarga
dýrum, áslríðum mínum og illum lilhneigingum. I’á fæ ég
82