Iðunn - 01.01.1885, Side 24
18
Grull.
sem segir í frásögum af því er hið mikla gull fannst
í Kalíforníu 1848, rjett eptir friðinn við Mexico, þar
sem Bandamenn eignuðust landið, og alveg um sama
leyti sem stjórnarbyltingin hófst á Frakklandi: að
það stórmikla happ hafi engum komið fremur á ó-
vart en landsbúum sjálfum.
jpað var einber tilviljun, að gullið fannst.
Maður er nefndur Suttér, svissneskur að ætt og
uppruna. Hann hafði fiutzt til Kalíforníu nokkrum
árum áður en hjer var komið sögunni og stofnsett
þar nýlendu, er hann nefndi Nova Helvetia, nærri
stóránni Sacramento. Jpar nærri fellur þveráin Ame-
rican-Kivers út í Sacramentofljót. jpar ætlaði Sutt-
er að koma sjer upp sögunarmyllu. jpegar sá, sem
stóð fyrir myllusmíðinni, Marshall mannvirkjafræð-
ingur, ætlaði að fara að veita vatninu að myllunni
úr ánni, sá hann mesta urmul af gullkornum glóa
í leðjunni, er skolaðist með vatninu. jpetta þóttu
mikil tíðindi í því byggðarlagi, og fiaugfregnin um
land allt eins og elding. Nú flykktist þangað fólk
hvaðanæfa' og var þar lcomin mikil byggð á skömm-
um tíma. í ágústmánuði sama ár fluttu dagblöð
austur í New-York sögur um þessi ógrynni gulls, er
fundizt hafi í Kaliforníu, út um allan heim, og upp
frá því tók að streyma þangað múgur og margmenni
úr öllum heims álfum. Svo segja kunnugir menn,
er þar voru þá, að þetta sama haust um vcturnætur
muni hafa verið búið að afla þar meira en 20 milj-
kr. virði í gulli frá því veturinn áður að það fannst
fyrst. — Stjórn Bandaríkjanna þóttist þó ekki geta
reitt sig á þær kynjasögur, er bárust þar vestan að
því nær daglega, ög skipaði því nefnd valinkunnra
L