Iðunn - 01.01.1885, Side 35

Iðunn - 01.01.1885, Side 35
Gull. 29 var það látið standa fyrir að nota það til gjaldeyr- is í Kalíforníu 1 fyrri daga og líklega enn. Er gull- sáldið þá ekki hreinsað öðru vísi en ofur-lauslega með því að hræra innan um það með segulstáli; seg- ulstálið tínir úr því mestallt það, er járnkennt er í því, og er gullsáldið síðan selt peningakaupmönnum eptir mati eða ágizkun, eða haft í kaupeyri manna ú milli. Eitt nef af gullsáldi er algengur gjaldeyrir í Kalíforníu ; en það er það sem tollir á milli tveggja fingra eða þriggja, eins og þegar tekið er í nefið. |>að verður að vera not og gjald þess sem við tekur, fivort hann græðir á því eða tapar. -— Gullkornin í þessu sáldi eru mjög ólík, bæði að stærð, iögun og lit. Optast eru þau annaðhvort hnöttótt eða þá flöt og núin af horn og randir. Liturinn móleitur eða ljósgulur, og skírleikinn þetta frá 600 til 990 á móti 1000. Er því óhréinsað gullsáld mjög mis- jafnt að gæðum, og er þess vegna torsjéð ókunnug- Um. Annars mun þessi aðferð, að skola gullið úr sandinum, vera farin að leggjast niður eða um það leyti. Enda er auðsjeð að sú aðferð muni ekki vera drýgileg. Greinilegur vottur þess er og það, að á ýmsum stöðum í Európu er nú tekið til að vinna aptur gullnámur, er hafa verið gagn-sorfnar áður einu sinni eða jafnvel optar. Er þá til dæmis að taka á tveim stöðum í Bæheimi. Við árnar Inn, Luná, Isar og Salzach er og tekin upp nýrri gull- námsaðferð, þannig löguð, að þar getur ekki orð- ið eptir í sandinum hin minnsta vitund af gulli; sömuloiðis við Eín milli Basel og Mannheim, við Emme og Aar í Sviss (Bern), og enn fremur í rúss- nesku námunum í Síberíu. Hinu gullkynjaði sandur

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.