Iðunn - 01.01.1885, Side 33
Gull.
27
um og opinn eptir endilöngu, og tvennar völtrur und-
ir. Er harla lítið smíði á því áhaldi að jafnaði. Ilát
þetta er nú fyllt til hálfs af gullsandi, síðan hleypt
þar að vatni og vaggan sett á stað—farið að rugga—,
en hrært upp í sandinum um leið við og við. Sezt
þá það sem þyngst er á botninn smámsaman. Síðan
er hert á rugginu.svo að vatnið skvettist út yfir
barminn á vöggunni og þar með það sem ónýtt er
af sandinum. þ>að sem stærst og þyngst er af sand-
inum tínir maður upp með hendinni, og tekur síðan
til að vagga aptur með nýju vatni, allt á sömu leið
og áður. Síðan hallar maður vögginni, svo að allt
vatn geti runnið úr henni og þar með það sem
smærst er af leir og sandi, öll mylsnan, sem er nú
skilinn vandlega frá. Eptir það er tekið til að vagga
aptur og eigi ljett fyr en eptir er að eins smágert
sandlag á botni vöggunnar. í þeim saudi er nú allt
það gull, er til var í mölinni að upphafi, nema hvað
öokkuð hefir þó skolazt burt með úrgangnum. Til
þess að ná burtu þessum sandi sem eptir er saman
við gullið, er allt saman lagt á járnkringlu, liún látin
niður í vatn og snúið þar heldur hægt hringinn í
kring; skolar þá vatnið öllum sandinum burt um
síðir og verður ekki annað eptir en gullsáldið, því
það er þyngra. — jpað er auðsjeð, að mikið muni
þurfa af vatni til þessa gullþvottar, og því var
það, að gullnámið gekk miklu seinna á sumrum í
Kalíforníu, er ár og lækir voru þurrir af sólarhita.
Til þess að bæta úr þeim vatnskorti, lögðu menn
saman og bjuggu til geysimiklar vatnsþrór, og veittu
vatninu þaðan um skurði í ýmsar áttir að gullekr-
unum. Skurðir þessir voru orðnir árið 18ð8, tíu ár-