Iðunn - 01.01.1885, Síða 41
Gull.
35
gulli; hitt (tj\ eða -]) úr öðrum málmum. Annars er
14 karata gull talið fullgott í flestar smíðar. Sje haft
silfur í samsteypunni, sortnar það smiði, ef við það
kemur eitthvert það efni, er brennisteins-vatnsefni
kviknar af, með því að sú lopttegund vinnur á silfr-
inu og svertir það; en sje það eir, þá gerir loptið
það aðverkum, að á þann grip slær blágrænni slikju.
það er enginn efi á því, að gull það, er nú er tíðast
haft í smíðar, muni vera stórum rýrara en almenn-
ingur gjörir ráð fyrir, ef til vill ekki nema 6, 4 eða
jafnvól 3 karata.
En þótt þessar blandanir geri gullið talsvert harð-
ara en það er eitt saman, verður það samt sem áð-
ur ætíð deigara en t. d. silfur, og slegnir gullpening-
ar slitna því fljótt svo mikið, að talsverðu munar í
vikt þeirra. Stjórnin á Eússlandi ljet gera fróðlega
tilraun því viðvíkjandi fyrir nokkrum árum í peninga-
smiðjunni í Pjetursborg. Var þar tekið nokkuð af
silfurpeningum og anuað eins af gullpeningum. 20
pundaf hvoru, oglátið hvað fyrir sig verða fyrir sam-
kynja núningi í þar til gerðri vjel í 4 klukkustundir.
Niðurstaðan varð sú, að silfrið hafði rýrnað um 2J
lóð, en gullið um 4f lóð eða því sóm næst, eða hjer
um bil helmingi rnéir en silfrið. Sje nú hlutfallið á
verði silfurs og gull t. d. óins og 1 á móti 15.s, þá
kemur það fram, að gullpeningar rýrna 30 til 31
meira á méðferðinni heldur en silfurpeningar.
—Gylling er eitt liið helzta þjóðráð til að prýða
ýmsa hluti með litlum kostnaði til þess að gera.
Hina ódýru málma, svo sem látún, bronze, eir, tin
sink, silfur, járn, stál, og meira að segja jafnvel
3*