Iðunn - 01.01.1885, Síða 61

Iðunn - 01.01.1885, Síða 61
Brjefstuldurinn. 55 af viti; hefði hann ekki verið nema bara góður reikn- ingsmaður, þá hefði hann alls ekki kunnað neitt að hugsa, og þá hefði lögreglustjórinn ekki verið upp- næmur fyrir honum«. »þú gerir mig forviða» mælti jeg. »þá speki hefi jeg satt að segja aldrei heyrt áður, að tölvitringar kunni ekki að hugsa. Jeg veit ekki betur en að allur heimur hafi verið á gagnstæðri skoðun til þessa. jpað getur varla verið alvara þín að ætla þjer að gera það að hjegóma, sem hefir verið viðurkennt um allan heim öldum saman. Beikningslegar álykt- anir hafa lengi verið haldnar hjer um bil hinar einu áreiðanlegu ályktanir«. Dupin svaraði með þessum orðum Chamforts lista- fræðings : »það má ganga að því vísu, að það sem er almenningsskoðun eða almennt viðurkennt, það er einhver heimskan, því að það hefir átt við fólk eins og það er flest«. Jeg veit vel, að það eru töl- vitringarnir sjálfir, sem hafa gert sitt til að útbreiða þessa villu, sem þú átt við, og sem er ekki minni vitleysa fyrir það, þótt það hafi verið boðað og meðtek- ið af almenningi eins og óyggjandi sannleiki. Jeg get komið með dæmi mínu máli til sönnunar, ef þú vilt«. »Mjer skilzt, að tölfræðingar muni ekki eiga upp á pallborðið hjá þjer, hvernig sem á því stendur; en haltú áfram«. »|>að er mikill misskilningur að ímynda sjer, að tölfræðisleg sannindi, sem kölluð eru, sjeu algild sannindi. Og þessi vitleysa er svo stórkostleg, að jeg skil ekkert í því, að allir skuli trúa henni. það sem er óyggjandi tölfræðislegur sannleiki eða reikn- ^ugssannleiki, er engan veginn algildur sannléiki.

x

Iðunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.