Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 59
IÐUNN|
Heimsmyndin nýja.
217
ekki jafnt hafa orðið til hér á jörðu sem annars-
staðar? Það er að seilast um hurðina til lokunnar
að leita til annara hnatta og jafnvel annara sólkerfa,
utn þessar líka óraleiðir og óhemju torfærur, lil þess
að skýra uppruna lífsins hér á jörðu, ef það getur
orðið jafn-léttilega til hér sem annarsstaðar.
Þótt tilraunir Pasteur’s og annara liafi sýnt, að
lííið geti ekki kviknað alt í einu og með einföld-
ustu tilraunum, er þar með alls ekki sagt, að það
geti ekki hafa orðið lil á alveg eðlilegan hátt ein-
hverntíma í þróunarsögu jarðarinnar úr lífefnum
þeim, sem getið var um, og öll urðu að verða til og
mynda ýmiskonar sambönd, áður en lífið yrði til.
Ef vér því viljum gera oss nokkurt far um að
gera oss fyrsta uppruna lífsins skiljanlegan, verðum
vér nú að snúa oss að þessum síðasta möguleika
°g kynnast tilgátum þeim, er að þvi lúta, að lífið
sé orðið til á alveg eðlilegan hátt í skauti jarðar-
ninar og á einhverju þróunarstigi hennar. Þar með
er alls ekki sagt, að lífsgátan sé leyst, heldur að eins,
hvar líklegast muni að leita lausnarinnar á henni.
[Frh. síðar.]
Llfið er dásamlegt.
Hugleiðingar um landamæri lífs og dauða
eftir
Steingrím Matthíasson.
I.
Lífi'ræðingar
hfandi vera,
telja það sameiginlegt einkenni allra
að þær eru gerðar úr »sellum« eða