Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 69

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 69
IÐUNNJ Lífið er dásamlegt. 227 gætti þess, að innýflataugarnar og taugalinoðin, sem að mestu leyti og af eigin rammleik stjórna innýfl- unum, væru óskert. Líkamanum má líkja við þjóðfélag, þar sem á- kveðin frumukerfi liafa visst sjálfstæði innan heildar- innar. Sumar frumur hafa smám saman fengið meiri völd en aðrar. Líf æðri dýranna má 'því segja að sé í rauninni marg-þáttað eða að minsta kosti megi þar greina þrjú lífsslig eða lífkerfi mismunandi full- komin. Fyrst er frumulífið. Frumurnar hvarvetna í lík- amanum geta að vissu leyti lifað fábrejdtu, en sjálf- stæðu lífi án tilhlutunar taugakerfisins. Því næst er innýflalífið, sem stjórnast af tauga- hnoðum, flækjulauginni (n. sympaticusj og flakk- tauginni (n. vagusj. En æðst og fullkomnast er sálarlífið, sem bundið er við heilann og liefir á hendi yfirstjórn líkamans, meðvitund, skyn, tilfinn- ing og vilja. í*essi þrennskonar lífsstig eða lífkerfi finnum við i dýraríkinu og sjáuin þar sjálfstæði þeirra hvers um sig greinilegar en hjá okkur sjálfum. Fjöldinn allur af lægstu verum (þar með má telja plöntur líka) hafa ekkert taugakerti. Sumar eru að eins ein fruma, en önnur eru frumuhópar, samvaxnar °g samstarfandi frumur, en án taugakeríis. Þó lifa þær sjálfstæðu lífi, hreyfast, nærast, anda og æxlast líkl og dýr, sem liafa taugakeríi, er standa þeim í destu framar. En sligi ofar standa ormarnir og lin- (3Ý i'in o. fl. Þau hafa taugakeríi, en það er að eins taugahnoðakerfi, þ. e. taugahnoð á víð og dreif um líkamann, og út frá þeim taugagreinar til hinna uiismunandi líflæra. Með öðrum orðum: svipað tauga- kerfi og innýflataugakerfi æðri dýranna og okkar mannanna. Loks finnum við í liryggdýrunum samskonar þrí- 15'

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.