Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 70

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 70
228 Steingrímur Matthíasson: | ÍÐUNN skift lífkerfi og vort, en í engu dýri verður heilinn nándar nærri eins margbrotinn og vandaður að gerð og í manninum. Og lítum við yfir framþróunarsögu dýranna, sjáum við, að taugakerfið hefir verið smám saman að þroskast stig af sligi, unz það náði mestri fullkomnun í manninum. Fyrst koma fram taugakerfislausir ein- frumungar, siðan fjölfrumungar, og síðan dýr með taugahnoðakerfi, en seinast dýr, sem þar að auki hafa mænu og heila, eins og maðurinn. Og enn má geta þess, að fóstursaga mannsins sýnir okkur hina sönnu stigbreytingu í frainþróun lífsins. í fyrstu er fóstrið taugakerfislaust, siðan þroskast hið meðvitundarlausa innýílalíf til starfa, og loks eftir fæðinguna vaknar sálarlífið til meðvitundar. Við dauða mannsins líður lííið hurt úr líkamanum í öfugri röð við framkomu þess. Þá hverfur sálar- lifið fyrst, siðan innýflalífið og seinast frumulífið. Þegar t. d. maður verður fyrir banvænu skoti gegn- um heilann, þá missist meðvilundin um leið, en hjartað getur enn haldið áfram að starfa i nokkrar mínútur, og sé nú líkið varið rotnun, geta frumur haldist lifandi víðsvegar í líkamanum enn um nokk- urn tíma. En jafnskjótt og rotnun fer að koma í Ijós (og þá er hún í rauninni komin langt á veg), þá hverfur alt líf úr líkamanum. En livað verður af lífinu? IV. Þegar lífið hverfur og líílaus líkaminn liggur eftir fölur og kaldur, þá furðar okkur á þeim feikilega mun, sem orðinn er, því munurinn er meiri en því verði með orðum lýst. Það er meira en lítilræði, sem líkaminn liefir mist, þó efnishyggjumenn fullyrði, að lfkaminn vegi jafnmikið eftir sem áður. Til skamms tíma liafa ýmsir fræðimenn sagt: lífið

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.