Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 74
232
Stolin krækiber.
[ IÐUNN
VIII.
Úr vísnabök ungrar stúlku.
Vissulega valt það er,
þótt virðist létt i draumi,
að Iáta hepni hossa sér
á hendinganna straumi.
St. P.
IX.
Aldrei fá menn af pví nóg,
alt þegar snýst i haginn,
hér í logni á lifsins sjó
að leika allan daginn.
Ú. A.
X.
Að lííið sé fríðara langt úti’ í lieim
við iátum oss tíðum dreyma,
en komumst pó siðar að sannlcika peim:
pað sælasta bíður heima!
Porgils.
Ritsjá.
Magnús Júnsson: Marteinn Lúther. Æfisaga. Bóka-
verzlun Sigf. Eymundssonar, Rvík 1917.
Það var vel til fallið, að pessi ævisaga Lúthers skyldi
koma út á 400 ára afmæli siðaskiftanna. Hún er alpýðlega
og fjörlega rituð og mundi hafa runnið út, ef hún liefði
ekki orðið svona dýr, sem hún er. En dýrtíðin og pappírs-
leysið veldur pví eins og öðru.
Ymsar smáathugasemdir mætti gera við bókina. Mér
finst ekki hinu andlega umhverfi, sem Lúther ólst upp i,