Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 75
ÍÐUNN] Ritsjá. 233 nægilega vel lýst, hvorki dultrúnni, pýzku guðfræöinni né fornmentastefnunni (húmanismanum). fá hefði og mátt lýsa betur öfgunum í lundarfari Lúthers sjálfs og sérstak- lega, hvað olli pvi, að hann tók hinum snöggu sinnaskift- um og gekk í klaustur. Auðsjáanlega hefir höf. felt par eitthvað undan, til pess að varpa ekki skugga á siðabótar- manninn, pví á bls. 21 segir liann: »En auk pessa glaða stúdentalífs . . .« og hefir pó ekki minst einu orði á »hið glaða stúdentalíf hans«; en samviskubit hans út af pví mun sennilega liafa valdið hinum snöggu sinnaskiftum. Pá virð- ist mér heldur ekki dæmt nógu réttlátlega um framkomu Lúthers í bændauppreisninni, viðskifti hans við Zwingli og afskifti hans af ástamálum Filippusar af Hessen. Lúther kom heldur ófagurlega fram í öllum pessum málum og hefir sjálfsagt ekki breytt par alstaðar eftir »beztu sam- vizku« (bls. 143). Loks hefði mátt benda betur á öfgarnar í trúarkenningum hans: fordæmingarkenninguna, að mað- urinn réttlætist einungis fyrir trúna, og mótsagnirnar í friðpægingarkenningu hans (bls. 101). En alt um pað er mörgu ágætlega vel lýst í bókinni og pó einkum heimilis- líli Lúthers. Lúther var beggja handa járn, blíður og stríður, og ekki altaf gott að gizka á, hvorri hliðinni hann sneri að mönnum og málefnum. Nokkur mállýti eru í bókinni og prófarkaleslur ekki sem beztur. Mállýti: að reka sig á andlegt andrúmsloft (bls. 10), djúpt trúhneigður (bls. 14), djúp áhrif (bls. 18), djúptrúaður (bls. 141), dauður fyrir peim (bls. 24), fyrir bonum heilsteypt (bls. 161), kýlinu aumasta (bls. 44), sára kýlið (bls. 48), hann brann af löngun (bls. öl), kjarna- Punktar (bls. 54) o. fl.; alt petta ber blæ af dönsku og Þýzku máli. Pá er töluvert af prentvillum í bókinni (bls. 7tí> 82, 87, 97, 103, 104, 123, 124, 125, 156, 163) og er petta sjálfsagt meira og minna pví að kenna, að höf. gat ekki sjálfur geíið sig nógu rækilega við útgáfunni. En af honum ni£» sjálfsagt vænta alls hins bezta, nú er liann er seztur i belgan stein við háskólann. C- Murphy: Börn, foreldrar og kennarar. Jón Pórarinsson pýddi. Bókaverzl. Sigf. Eymundss., Rvík 1917. Þessi bók, sem fremur ætti að lieita »Kennarar og börn«,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.