Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Side 82
240
Ritsjá.
| IÐUNN
aðar né nákvæmar og hefði þvi mátt sleppa pcim. En í
þessu bindi eru þó ómetanlegir gimsteinar, eins og t. d.
Klukkuljóð Schillers, Kafarinn o. fl. Alex. Jóhannesson dr.
liefir séð um útgáfuna.
Sigfús^ Blöndal: Drotningin í Algeirsborg og önnur
kvæði. Utg. Porst. Gislason, Rvík 1917.
Ný kvæðabók og all-nýstárleg á uppsiglingu undir jólin,
mestalt sagnakvæði og ólík þeim, sem áður liafa birzt á
íslenzku. Auk þess þýðingar eftir ýmsa merka höfunda.
Af frumsömdum kvæðum mætti einna helzt nefna aðal-
kvæðið: Drotninguna í Afgeirsborg, sveitastúlkuna íslenzku,
er varð að drotningu í Suðurlöndum; Atla Húnakonung;
Guðrúnu Osvífursdóttur; Sörli ríður í garð; Draum Hanni-
bals o. fl. Pá koma kvæði ýmislegs efnis og loks þýðing-
arnar. Af þeim mætti einna helzt nefna Skóarann eftir
Tennyson; Minningarljóð Manzoni’s yflr Napóleon (Fimti
maí) og ýmsar þýðingar úr forngrísku.
Sjöfn. Pýðingar úr erlendum málum. Eftir Á. II. fí.
Rvík 1917.
í kveri þessu, sem kemur út undir jólin, eru þýðingar
á smákvæðum eftir ýmsa erl. höf , svo sem Longfellow,
Heine, Petöfi, Goethe, Fröding, Edgar Poe og Alexis Tol-
stoy. »Iðunn« vill auðvitað ekki leggja neinn dóm á þessar
þýðingar, sakir venzla sinna við þýðandann, en vel má
liún benda mönnum á kverið.
Guðm. Guðnumdsson: Ljóð og kvæði. Nýtt safn. Róka-
verzlun Sigf. Eytnundssonar. Rvík 1917.
»lðunn« er nýbúin að fá bókina og getur því ekki lagt
neinn dóm á hana að sinni.
Á. II. B.