Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Qupperneq 3
IÐUNNI
Um
persónulegar tryggingar.
Svo stórvaxið og gamalt sem þetta mál er orðið,
gegnir það furðu, hve lítið hefir verið rætt og ritað
utn það hér á landi. Menn hafa þó fundið til þess
hér á íslandi, ekki síður en annarstaðar, hvað mikil
og alvarleg þau áföll eru, sem mætt geta mönnum,
og altaf mæta einhverjum og gera þá ófæra til að sjá
fyrir sér sjálfa. Þarf ekki um það að efast, að menn
hér sem annarstaðar skilja nauðsjmina á því, að koma
hag sínum þannig fyrir, að þau áföll, setn kunna að
mæta, verði ekki til þess að koma mönnum á vonar-
völ eða sliga þá efnalega.
Málið hefir aðeins verið hér til meðferðar. Alþingi
fól fyrir nokkrum árum dr. Ólafi Daníelssyni að
reikna út ellistyrksgjöld, og lög hafa verið samþykt
um sjúkrasamlög. En þegar ellistyrksútreikningarnir
Iágu fyrir var ekkert frekara gert, og þau sjúkra-
samlög, sem stofnuð liafa verið, virðast harla bág-
stödd. Eini vísirinn að persónulegum tryggingum auk
líftrygginganna er ellistyrktarsjóðurinn, en til hans
eru öll útgjöld svo við neglur uumin, að sú hjálp
sem hann getur veitt, er einskisvirði í yfirsjáanlegri
framtíð.
Þegar litið er til starfandi trygginga hér á landi,
virðist svo sem menn telji enga verulega áfallahættu
fólgna í neinu öðru en eldsvoða eða skipskaða. Því
að bruna- og sjó-vátryggingar eru hjer einu almennu
tryggingarnar — og eru þó brunabótakjörin mjög
16