Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Síða 34
272
Mattli. Jochumsson:
HÐUNN
bermæltur á samkomum, t. d. er samkoman slóð á
Oskjuhlíð og hann flutti »demokratiska« tölu and-
spænis konungi, sáum við, að Bayaid Taylor likaði
miður, gekk feti fram og mælti á þýzku nokkrum
mildandi orðum og mællist vel. Peir B. Taylor og C.
Field voru manna mestir vexti og hinir drengilegustu,
kváðust og vera niðjar Leifs hins heppna og færa heilla-
óskir fóstru hans og landi frá Vínlandi hinu góða —
eins og Bayard segir í kvæði þvi, er prentað var í
»Sæmundi fróða« og ég íslenzkaði. Dr. Hjaltalín land-
læknir gaf sig mest við þeim, enda áttu þeir bezt
saman. Peir komu á skipi sér, lillu, og höfðu hrept
slæm veður, en lítt voru þeir félagar sjóhræddir, sagði
Eiríkur, er með þeim var.
Dr. Leitner frá Lahore á Indlandi, var einn þeirra
einhleypinga, eða túrista, er heimsóttu oss þá, ein-
ungis til að sýna sig og sjá aðra, að okkur virtist.
Dr. Leitner þessi barst allmikið á og sagðist vera
einhver helzti fræðimaður í fornum tungumálum
Asíu-þjóða. Hitli hann brátt okkur Steingríin Thor-
steinsson (því í þá daga héldum við saman eins og
Síamskir tvíburar, og hentum gaman að öllu, er
okkur þótti kýmilegt eða humbugskent). Við leylðum
okkur að spyrja þennan lága, rauðdumbótta Asíu-
inann um »kreditív« hans eða skilríki, og þótlumst
vera til þess settir. Hann firtist við, og tók upp hjá
sér lítið og snjáð bókfeilsblað, útkrolað með krjabulli,
líkast fleygletri, og sagði: »þar er mitt kreditív; þetta
letur hefi ég lesið og skýrt fyrstur maður í heimi«.
Hann mælti á enska tungu, en bauð okkur að tala
á hvaða máli, sem okkur þóknaðist. Að ætt var hann
sagður »Seiníti«, en ekki þótti okkur hann hafa
Gyðingasvip, og heldur var hann úíinn ásýndar og
gustillur. Frá okkur gekk bann á fund Gríms Thom-
sens. Hafði hann spurt Grím, hvernig á þeim skratta
stæði, að hvorki konungurinn eða hirðrnenn hans