Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Page 48

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Page 48
286 Troels-Lund: IIÐDNN En ég kveð þig til þessa starfa, af því að ég hefi séð þig á þessum slóðum, í þessum görðum, á þess- um engjum og í þessum skógi, síðan þú varst barn. Þú þekkir þetta alt frá blautu barnsbeini betur en nokkur annar núlifandi maður og þér þykir vaent um landið. Bróðir þinn, sem hjálpaði þér lil þess að mæla hæð hlynanna í garðinum, hefði að vísu verið hæfari til þessa, en á honum þurfti ég nú að halda, eftir að Dybböl féll. Ég varð þvi að nægjast með þig og gera þig smámsaman, og óséður þó, svo úr garði, að þú gælir þetta. F*ú ætlaðir að skrifa ævisögu þína. En þú ált nú ekki að vera miðdepil! þess, sem þú segir frá, þú ert of lítilmótlegur til þess. Þú hafðir hugsað þér að halda áfram bók þinni BLivsbelysningct1) alt til vorra daga; en til þessa ert þú of ókunnugur öðrum þjóð- um og öðrum löndum. Lú átt að eins að segja frá vaxtarsprotunum á hlynunum í Bakkahúsinu gamla, hversu þeir hafa dafnað í ættliðum þeim, sem frænd- fólk þitt heíir sagt þér frá og þú hefir sjálfur verið samtíða. Og þú átt að segja frá atburðunum eins og ég reyni að skýra þá fyrir þér, en þar kem- ur þú sjálfur lítið við sögu, ekki öllu meira en er þú sem barn varst að reyna að mæla hæð hlyn- anna. Öldum saman heíi ég unnað þessum stað. F*egar því ljósboðið og hitabylgjan leið yfir, einnig hér yfir Danmörku, kaus ég mér þennan slað og gróðursetti hinar ungu plöntur i gróðurreiti Bakkahússins, þangað til unt yrði að dreifa þeim út um víðavang.. En þar runnu upp ný sjónarsvið, þaðan sem menn virtu fyrir sér ráðgáturnar gömlu um ljós og myrkur, dag og nótt, líf og dauða og tilveruna í heild sinni. Og 1) Síðasta bindi í »Daglígt Liv i Norden«, sem rœðir um trúar og lifs- skoðanir mannn fra fyrstu timum og fram a 10 old.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.