Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Side 68
306
Á. H. B.:
jlÐUNN
legt og andmælti mörgu af því, sem Myers V. (þ. e.
Myers sá, er birtist hjá frú Verrall) sagði, og þó átti
þetta að vera andi sama manns.
Þetta virðist nú benda á, að »andar« þessir séu
ekki annað en hugarfóstur miðlanna sjálfra: Myers
P. hugarlóstur frú Piper og Myers V. hugarfóstur
frú Verrall o. s. frv. Eitt, sem styrkir skoðun þessa
og stappar nærri sönnun á benni, er það sem kom
fyrir við siðustu tilraunirnar á frú Piper og varð
þess valdandi, að hún misti trúna á miðilshæfileika
sinn og þar með sjálfan miðilshæfileikann.
Árið 1909 hafði sálarfræðingurinn, dr. Stanley Hall
ásamt ungtrú dr. Tanner nokkrar setur ineð frú
Piper og bað »anda« Hodgson’s að koma sér i sam-
band við frænku sína, Bessie Beals. Ekki var mikil
tregöa á því. Frænkan kom í sambandið, sagði litið
í fyrstu, en þegar á 3. setu tók hún að segja frá
ýmsum einkaminningum og þó helzt þvi líku, sem
dr. Hall hafði gefið tiiefni til með spurningum sínum
og þau áttu að hafa lifað saman, Hall og hún. En
svo skýrði dr. Hall Hodgson P. frá því, sem satt
var, að hann hefði aldrei átt neina frænku með því
nafni. Pá var »stjórnandinn« ekki lengi að breyta
»Bessie« í »Jessie« og segja, að þetta væri alt önnur
slúlka, sem væri að leita að móður sinni. Og þó
þóttíst frú Piper hafa séð »Bessie« einu sinni, er hún
var að vakna, og getur þetta vel hafa átt sér stað
fyrir sefjan (suggestion) frá dr. Hall. En hitt er áreiðan-
lega vist, að þessi »frænka« Halls og hinar sameigin-
legu minningar hans og hennar er tómur tilbúningur
úr honum og hugarburður úr miðlinum. Sú mann-
eskja og sá »andi« hefir aldrei verið til í raun og
veru1).
Enn er ótal margt, sem bendir á, að þessir »andar«
Proccedíngs XXVIII, bls. 177.