Kirkjuritið - 01.08.1939, Qupperneq 9
Kirkjuritið.
Vita
Sigurgeirs Sigurðssonar biskups
við biskupsvígslu í Dómkirkjunni 3. snd. e. trinitatis (25.
júní) 1939, þegar dr. theol. Jón Helgason biskup vígði
hann eftirmann sinn.
Ég, Sigurgeir Sigurðsson, sonur Sigurðar Eiríkssonar
regluboða og konu hans, Svanhildar Sigurðardóttur, er
fæddur að Túnprýði á Eyrarbakka í Árnessýslu, 3. dag
ágústmánaðar 1890. Ólst ég upp á heimili foreldra minna
á Evrarhakka til 14 ára aldurs, eftir að ég hafði verið
fermdur í Eyrarhakkakirkju af séra Ólafi Magnússyni nú-
verandi prófasti í Arnarhæli, en þá flullist ég ásamt þeim
og fimm systkinum mínum til Reykjavíkur. Frá hernsku-
og æskuheimili mínu á ég margar endurminningar, sem
ég fæ ekki fullþakkað. Ég átli frábæra foreldra. Þau voru
að vísu fátæk af fjármunum, en rík af umhyggju og ást.
Þau lögðu fram alla krafta sina í uppeldi okkar systkin-
anna og voru fús til sérhverrar fórnar fyrir okkur, og
ekki sízl hefi ég ástæðu til að vera þeim þakklátur fyrir
það, er þau gjörðu fyrir mig á bernskuárum mínum og
námsárum. — Eftir að ég fluttist með þeim til Reykja-
víkur, tók ég að húa mig undir skólanám. Var sérstak-
lega föður mínum mikið áhugamál, að ég „gengi menta-
veginn“, sem svo var kallað, og lagði ég út á brautina.
Þvi fór þó fjarri, að ég væri mikill námsmaður. Ég hafði
að vísu yndi af lestri hóka, en hugurinn lmeigðist meira
að öðrum hókum en námsbókunum og skyldunámsgrein-
unum, og ýms hugðarefni álti ég þegar í æsku, sem heill-
oðu mig, og þá sérstaklega sönglistina, sem mér frá fyrstu
•æfir verið mjög kær og ég hefi varið allmiklum tíma til.
Ég útskrifaðist úr Mentaskóla Reykjavikur vorið 1913 á