Kirkjuritið - 01.08.1939, Blaðsíða 38
252
Prestastefnan.
Ág.-Sept.
2) Ákveða fyrirkomulag á því starfi, sem sjóðnum er ætlað að
styðja, og þá jafnframt, hvenær það starf sluili byrja.
3) Taka til íhugunar og gera ákvæði um önnur þau atriði,
er nefndin telur henta og standa í sarnbandi við það, sem hér
er lekið fram.“
Nefndin vinni kauplaust, en fái greiddan úr sjóði Strandar-
kirkju ferðakoslnað eftir reikningi, svo og annan þann útlagðan
kostnað, sem þurfa þykir. Biskup landsins, vígslubiskup Skál-
holtsbiskupsdæmis, prófastur Árnesprófastsdæmis og formaður
stjórnar Prestafélagsins skulu sjálfkjörnir í nefndina, en hina þrjá
kýs Prestastefnan. Biskup landsins sé sjálfkjörinn formaður
nefndarinnar.
Auk þeirra manna, sem tillagan stingur upp á, voru kosnir í
þessa nefnd þeir séra Gísli Skúlason, séra Guðmundur Einarsson
og séra Jón próf. Þorvarðsson.
Friðrik J. Rafnar vígslubiskup ræddi um skip-
un sókna og prestakalla og bar fram þessa
Skipun sókna
og prestakalla
tillögu:
„Prestastefnan 1939 beinir þeirri ósk lil kirkjumálaráðherra,
að hann skipi tvo menn, biskup landsins og annan með honum,
til þess að endurskoða lög um skipun prestakalla frá 1907 og
gera tillögur um þær breytingar þeirra, sem ýmislega breyttar
aðstæður krefjast, svo og gera tillögur um þær breytingar á
sóknaskipun í landinu, sem tilflutningur fólksins, vega- og brú-
argerðir hafa gert æskilegar. Skulu hinir stjórnskipuðu menn
vinna að þessu í samráði við prófastana í hverju prófastsdæmi
og taka, eftir föngum, tillit til vilja safnaðanna á hverjum stað.
Ætla skal nefndinni rúman tíma til starfsins, svo kostur sé að
kynna sér alla aðstöðu sem bezl og leggja tillögur hennar, að
þeim gerðum, undir samþykt kirkjuráðs og prestastefnu.“
Tiliagan var samþykt með öllum greiddum atkvæðum.
Ennfremur var samþykt þessi viðbótartillaga frá séra Þor-
steini Briem:
„Jafnframt sé nefndinni falið að athuga í samráði við fræðslu-
málastjórnina, hvar hentugt muni vera að sameina að ineira
eða minna leyti kennarastarf og prestsstarf“.
Prestastefnan og KveSjusl';eyti fót’u 1 milti prestastefnunnar og
uppeldisþingið uppeldisþings Sambands íslenzkra barnakenn-
ara og voru þau sem hér segir:
„Prestastefna íslenzku kirkjunnar 1939 sendir uppeldismála-
þinginu lcveðju sína og lýsir yfir þeirri ósk sinni, að samhugur
og samslarf megi eflast milli prestastéttarinnar og allra þeirra,
er að uppeldismálum vinna, um úrlausn uppeldismála samtíðar-