Kirkjuritið - 01.08.1939, Qupperneq 40
Ág.-Scpt.
Aðalfundur Prestafélags íslands.
Tilhögun
Aðalfundur Prestafélags íslands var haldinn
Fundarsokn . húsi R p ^ M j Reykjavík fimtudaginn
29. júní, og sóttu hann biskup landsins og vígslubiskupar og 40
aðrir andlegrar stéttar menn.
Félagsstjórnin hafði gjört ])á ráðstöfun, að
fundurinn stæði að þessu sinni aðeins einn
dag, því að dvöl presta við biskupsvígslu og fundarhöld áður
myndi þá orðin í lengsta lagi. Séra Friðrik Hallgrímsson prófast-
ur stjórnaði fundinum og gegndi formannsstörfum í stað Ás-
mundar Guðmundssonar prófessors, en fundarritarar voru þeir
séra Friðrik A. Friðriksson prófastur og séra Einar Sturlaugs-
son. Friðrik J. Rafnar vígslubiskup las í fundarbyrjun ritningar-
kafla og bað bænar, en séra Sigurður J. Haukdal prófastur í
ftindarlok. Sálmar voru sungnir á eftir bænum þeirra.
Prestafélagsstjórnin fór þess á leil við ríkis-
stjórnina, að öllum prestum yrðu greidd full
laun frá fardögum 1938, og varð sú málaleitun
tekin lil greina. Þá vann Prestafélagsstjórnin einnig að því, að
réttur yrði hlutur þeirra presta, sem látnir hafa verið greiða i
ríkissjóð of há gjöld af prestsseturshúsum.*) Útgáfustarf hefii'
ennfremur verið ákveðið að auka. Þeir háskólakennararnir Ás-
mundur Guðmundsson og Magnús Jónsson hafa þýtt á íslenzku
bók Eivinds Berggravs Oslóarbiskups, „Spendingens Land“, en
hún seldist bezt allra bóka á Norðurlöndum veturinn 1937—’38
og þykir mjög mikið til hennar koma. Er ætlast lil þess, að bókin
komi út í haust i vandaðri útgáfu. Einnig er timi til þess kom-
inn, að hafinn sé undirbúningur að samningu og útgáfu nýrra
prestahugvekna, og verður prestum skrifað bréf um það mál.
Loks átli Prestafélagsstjórnin m. a. frumkvæði að því, að guð-
fræðinemum yrði falin prestsþjónusta í óveittum preslakölhim
síðasta sumar þeirra í guðfræðideildinni.
Skýrsla
stjórnarinnar
‘) Skrifstofustjórinn í kirkjumálaráðuneytinu sagði mér 19-
ág., að leiðrétting væri fengin. Á. G.