Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 13

Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 13
Kirkjuritið. Séra Þorsteinn Kristjánsson. Það er erfitt að átta sig á því, að hann og starfs- bræðnr hans, sem látizt hafa á þessu ári, séu horfnir frá starfi og úr hópi vina sinna, þar sem þeir nutu hinna mestu vinsælda. Öll íslenzka prestastéttin saknar þeirra sárt og sendir ástvinum þeirra innilegustu samúð- arkveðjur. Séra Þorsteinn vár einn þeirra, sem tók sér far með vélskipinu „Þormóði“, sem fórst nóttina milli 17. °g 18. febr. s.l. — Hugsaði hann sér að dvelja nokkra ^aga í Reykjavík og hverfa síðan aftur heim til ástvina S1nna og verkefna þeirra, sem þar biðu lians í mikil- v*gu og merkilegu starfi prestsins. — En þetta varð hinzta förin í þessum heimi. Séra Þorsteinn er fæddur 31. ágúst 1891 að Þverá í Eyjahreppi í Hnappadalssýslu. Voru foreldrar hans þau Kristján Jörundsson hreppstjóri og kona hans Helga Þorkelsdóttir. Móður sína missti hann 1930, en föður sinn 1937. Það kom snemma i Ijós, er séra Þorsteinn var á unga nldri, að hugur hans hneigðist til þess að nema bókleg

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.