Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 18

Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 18
88 J. Kr. í.: Séra .Tón Jakobsson. Marz því óræk vitni. Trú hans var lirein og laus við allar kreddur og kennisetningar, og' hann hoðaði hiklaust þann kristindóm, sem hann taldi sannastan og réttastan. Það var þessi kristindómur, sem gerði sóknarhörn séra Jóns sál. sterk og óviðjafnanlega hugrökk, þegar ég bar þeim fregnina um liið hörmulega slys. Þá varð ég þess persónulega var, hversu djúpar rætur lcenning hins látna vinar míns og starfsbróður höfðu fest í hugum sóknarharna hans. Yfir hetjulund og hinn sterka trúar- þrótt syrgjendanna ná orð mín ekki, þau yrðu aldrei annað né meira en lýsing, en eklci sjálfur raunveruleik- inn. Séra Jóni sál. auðnaðist ekki, nema að örlitlu leyti, að sjá uppskeru af sáningu orða sinna, en mér varð hún ljós. Meðal hinnar íslenzku prestastéttar hlýtur minningin um slíkan mann að verða björt, en þó um leið hljótum við að sakna starfs hans. Við munum ekki vökva minn- ingu hans með tárum, heldur minnast hans á þann liátt, sem honum mun liafa verið hugleiknastur. Við skulum starfa á þeim grundvelli, sem hann starfaði — við skul- uin hoða sannan kristindóm, eins og hann er sannastur og réttastur í lífi Jesú Krists og kenningu. Þótt djúp skörð séu iiöggvin í stétt okkar, skulum við ótrauðir starfa af einlægni fyrir þeim málstað, sem við vitum, að er sannastur og réttastur. Með því móti heiðrum við minningu séra Jóns Jakobssonar frá Bíldudal. Vinur minn! Ég veit, að „hinn látni lifir“, ég veit, að þú lifir, þótt þú sért hulinn sjóniun mínum. Ég þakka samverustundirnar og' það starf, sem þú hefir unnið í þágu kristindómsins. Guð blessi þig. Jón Kr. ísfeld.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.