Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 26

Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 26
96 M. J.: Trúaráhugi í her Bandar. Marz. um er enginn guðleysingi“. Þar voru 29 herprestar sífelt á ferli um eldgöngin og veittu hermönnunum huggun og styrk. Sex þeirra hlutu sérstök heiðursmerki. 6. Einn af herprestunum á Bataan sagði: „Ég er bú- inn að fára 2000 mílur i fremstu viglínu á 6 vikum“. Katóskur herprestur sagði: „1 mánuð hef ég messað á hverjum degi og aldrei tvisvar á sama stað“. Annar sagði: „Hundruð pilta biðja um Biblíur. Aldrei á æfi minni hefi ég séð Biblíuna lesna eins og hér“. Kvöldið fyrir páska fékk herprestur einn i Corregi- dorvirkinu einkennilega*heimsókn. Það var hermaður, sem kom til hans, alvopnaður, órakaður, svitastorkinn og óhreinn, beint úr eldinum. Hann sagði: „Mig langar til að hiðja yður að skíra mig í fyrramálið. Það er búið að dragast of lengi!“ Næsta morgun komu eins margir saman í virkinu, eins og máttu fara frá vörninni, foringjar, hjúkrunar- konur og hermenn. Páskamessan var flutt. En hámark hennar var það, þegar þessi hermaður, kominn beint úr orustunni, gekk að skírnarlauginni. Heima og á fjarlægustu vigstöðvum fer Guðs orð með herjum Bandai-íkjanna. Milljónir ungra manna hafa fundið nýtt mark að stefna að og nýja uppsprettu- lind kjarks og lifsþróttar.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.