Kirkjuritið - 01.03.1943, Side 15
Kirkjuritið.
Séra Þorsteinn Kristjánsson:
85
'íiiklu starfi fyrir hið opinbera, ritaði hann allinikið, og
nmn hafa átt ýmislegt í handritum, sem hann ekki liafði
omið i verk að láta prenta. Skáldmæltur var liann vel, og
hygg ég, að hann láti eftir sig allmikið af óprentuðum
Ijóðum.
Ivver og hihlíusögur voru gefnar út eftir hann fyrir
nokkrum árum og eru allvíða notuð við uppfræðslu
óarna í kristnum fræðum.
Séra Þorsteinn átti fallegt lieimili. Ríkti þar friður og
'nnri fegurð. Voru þau hjónin samhent í gestrisni, og
Ina fullyrða, að heimilið var gott athvarf öllum þeim,
er Þangað leituðu, og að frá þvi stöfuðu góð áhrif — á-
hrif trúar og menningar.
Séra Þorsteinn var drengur hinn bezti, gáfaður, góð-
gjarn og gamansamur. Þessvegna var liann góður félagi
°g starfsbróðir.
Lifsstarf lians var fagurt. Þeir, sem þess nutu, virtu
hann og elskuðu. Þegar hann fyrir nokkrum árum hugði
sækja í annað jjrestakall, báðu sóknarhörnin hann
að fara livergi. Hann varð við þeiin óskum safnaðanna.
Nú var liann kallaður burt af því valdi, sem allir
verða að lúta. En áhrif lians og andi lifa enn og starfa.
Og Guð mun lilessa árangurinn og gefa ávexli af því,
er úann sáði. Vér blessum minningu lians og biðjum
Guð að vaka yfir ástvinmn hans og söfnuðum.
Sigurgeir Sigurðsson.