Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 34

Kirkjuritið - 01.03.1943, Blaðsíða 34
104 Kjartan Sigurjónsson: Marz. strjálbýlis og vondra veðra, þá tókst samt fyrir óvenju mikinn áhuga fólksins þar og sérstakan dugnað söngmálastjóra að stofna þarna og æfa 17 manna kór, er síSan hefir annazt sönginn í Oddakirkju. Þetta er gleSilegur vottur þess, að unga fólkið sé að vakna til frekari starfs í þágu kirkjunnar, og er þetta fögur hugmynd fyrir önnur ungmennafélög í landinu að starfa beint að því að vekja unga fólkið til frekara starfs og meiri umliugsunar um kirkjuna og hennar málefni. Næsti viðkomustaður okkar var Borgarnes. Þar hafði tekizt samstarf milli Karlakórs Borgarness og kirkjukórsins, báðum til ómetanlegs gagns, og mætti það verða öðrum til fyrirmyndar. Kirkjukórinn í Borgarnesi tók nú að æfa af kappi undir liljóm- teika, og voru þeir haldnir þ. 15. nóv. 1942 í samkomuhúsinu í Borgarnesi fyrir liúsfylli og hinum beztu undirtektum. Það er mjög freistandi að geta þess, að kvöldið eftir hljómleikana, bauð séra Björn Magnússon öllum kórnum ásamt söngmálastjóra, sókn- arnefnd o. fl. heim til sín að Borg. Átti fólk þetta þarna hina ánægjulegustu kvöldstund. Það er Sannarlega til mikillar uppörfunar fyrir hvaða kór sem er að finna, að presturinn fylgist svona vel með starfi hans og meti það að verðleikum. ' Kirkjukórinn i Borgarnesi liefir ágætum kröftum á að skipa og Borgnesingar þurfa sannarlega engu að kvíða i þeim efnum, er þeir liafa reist liina fyrirhuguðu kirkju sina i Borgarnesi. Næst var numið staðar á Akranesi. Þar hefir nú um langt skeið verið starfandi kirkjukór, sem jafnan hefir haft á að skipa hin- um beztu kröftum, og má það bezt marka á því, að úr þeim kór liafa nýlega tvær konur sungið i útvarpið. Kór þessi er það góður, að ég er ekki í neinum vafa um, að Akrnesingar mega bráðlega eiga von á góðum kirkjuhljóm- leikum. Frá Akranesi héldum við til Víkur i Mýrdal. Þar hefir einnig um all-langt skeið starfað kirkjukór, sem nú var bætt í nokkrum nýliðum, og tók svo hinn nýstofnaði Víkurkirkjukór til óspilltra málanna að æfa undir kirkjuhljónileika, er haldnir voru í Vík- urkirkju þ. 6. des. 1942 við húsfylli og ágætar undirtektir. í Víkurkirkjukór eru um 20 meðlimir. Til þess að lýsa þeim kór frekar eða söng hans er mér málið of skylt, þar sem ég er einn af félögum hans, og læt ég því útrætt um liann. Frá Vík var haldið að Breiðabólstað í Fljótshlíð. Þangað

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.