Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 7

Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 7
Kirkjuritið. Iivítasunna. 189 eygja lifið i nýju ljósi við það að láta áhrif And- ans berast inn til hjartna vorra — i ljósi eilífrar hvíta- sunnu, er vér maetum hinum upprisna Kristi! Hvílík breyting varð ekki á lærisveinahópnum eftir að þeir höfðu öðlast gjöf Heilags Anda. Líf þeirra varð allt annað frá þessum degi. Sumarsólin skein inn í hjörtu þeirra með vermandi, ylhlýju geislamagni. Kristur lýsti þeim í lífi og dauða. Þeir sannfærðust nú um það, að fyrirheit Jesú voru liinn dýrlegasti veruleiki, er hann hafði sagt, að faðirinn mundi í sínu nafni senda þeim buggarann, Andann Heilaga. Hvílik ólýsanleg gleði og brifning gagntók þá ekki! Vér skulum reyna að láta eitthvað af þessum fögn- uði og hrifningu gagntaka oss, einkum nú á þessari há- •'ð andans, heilagri hvítasunnu, hvort sem vér erum umvafin blómkrónu æskunnar eða krýjid silfursveig ellinnar. Þvi margt er það, sem oss og þjóð vorri er skylt að þakka góðum Guði fy rir einmitt nú á þessum árstíma. Vér skulum því, í stað þess að liorfa á h'ið dapra og dimma, heina sjónum vorum á hið bjarta og fagra, upp i eilifa Ijósið hjá Guði, ofar dægurstriti og Umsvifum jarðlifsins. Ef nokkur árstíð getur glætt liið mnra með oss fegurð og sanna bjartsýni, þá er það einmitt sumarið, þessi dásamlegi þroska og vaxtartími 1 gervallri náttúrunni. Minnir ekki þetta oss á það, að einnig vort eigið líf getur orðið jafn fagurl og auðugt að þeim verðmætum, sem hvorki mölur eða rvð fá grandað, ef vér leyfum helgandi áhrifum IJeilags Anda að umskapa akur hjartna vorra, svo að fögur blóm eilífrar trúar megi þar fram spretta fyrir geislum hvítasunnunnar og blessun- arrikir ávextir koma þar í Ijós, er vei’ði til sannra nytja °g heilla. En vér hljótum þá einnig að minnast kristinnar kirkju uu á þessu afmæli hennar og biðja þess, að sterkviðri andans feyki deyfðinni og lognmollunni burt og ávext-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.