Kirkjuritið - 01.06.1946, Blaðsíða 34
P. S.: Leiðtogai1 stórþjóðanna.
Júni-Júlí.
21 (i
að bilar. Hún er tvinnuð og snúin úr hinum beztu taug-
um mannlífsins: ættjarðarást, áttliagatrygð, ræktarsemi
við ætt og óðal, foreldri og forna trú og' lífsvenjur, elsku
til lands og þjóðar og' elskunni til Guðs og' manna.
Þetta mun reynast okkur liollast og bezt, nú á þess-
ari nærgöngulu reynslunnar stund: elska landið og lifa
fyrir það, trúa á landsins Guð og tilbiðja liann. Þetta
er sú harðsnúna bjargtaug, sá vígði þáttur, sem lieldur
í lifi og dauða. Ekkert vopn myrkravaldanna bítur á
liana, og engir galdrar tröllmennskunnar fá grandað
lienni. Að henni þurfuni við að lilúa betur í okkar eigin
lífi og lífi allrar þjóðarinnar, en oft hefir gert veiúð
undanfarna áratugi. Það skal því vera söngur sálna
vorra, þetta dýrðlega andvarp: „Vér lifum sem blakt-
andi, blaktandi strá“, og': „vér lofum þitt heilaga, lieil-
aga nafn“.
Pétur Sigurðsson.