Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 37

Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 37
Kirkjuriti?> Prestastefnan. 219 orð eru ti., sem geta lýst henni. Það er aðeins lítið, sem vér Islendingar getum gjört til þess að draga úr þess- um þjáningum. Vér eigum viljann lil þess, og oss langar lil að eiga einhvern þátt i því fagra verlci að draga úr þeim. En máttur vor nær skammt. En vér kirkjunnar menn getum gert annað. Vér getum lagt oss alla fram um, að þessi þjóð eigi ekki i vændum þjáningarílca framtið vegna mistaka, misstiga og' vegna lífernis, sem hlýtur að leiða af sér kvöl og neyð. Þér liafið veitt því athygli, að fyrir skemmstu hefir allmikið verið talað og rætt um það, sem aflaga fer hér í landi voru i siðferðilegu tilliti, einkum meðal æsku- lýðsins. Mönnum kemur saman um, að við svo húið megi ekki standa. Ég' liefi ekki orðið var við, að bent liafi verið á margar leiðir til þess að ráða bót á þessu, enn sem komið er. Það hefir verið rætt um að fjölga lög- i'egluþjónum i bæjunum, og efast ég ekki um, að þess er fullkomin þörf. Það er engin leið til örugg, önnur en sú, að hafa áhrif á lyndiseinkunn hinna ungu. Og engin áhrif koma þar að fullu gagni önnur en áhrif kristindómsins. Kirkjan verður að láta þessi mál til sín taka. Ég skal játa, að liún hefir að ýmsu leyti sæmilega aðstöðu til þess úti um land. En liún hefir hinsvegar langt frá því góða aðstöðu til þess í höfuðborginni og öðrum stærstu kæjum landsins. Til þess að áhrif kirkjunnar komi að §a§ni> þarf presturinn hver á sínum stað að leggja fram mildð, mér liggur við að segja, daglegt starf. Þetta starf krefst mikils tíma, umhugsunar og árvekni. I raun og veru þarf presturinn að liafa persónulegt samhand við hvert einasta barn og ungling í söfnuðinum. Starf kirkjunnar kernur ekki að fullum notum fyrr en þessu marki er náð. — En eins og nú standa sakir, t. d. í Reykjavík, og hið sama mun vera að segja um Akur- eyri og aðra stærstu kaupstaðina, geta prestarnir alls ekki haft slikt samhand við hina ungu. Starf þeirra er

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.