Kirkjuritið - 01.06.1946, Síða 45
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
227
lijartanlega velkomna i hóp vorn og árna þeim blessunar Guðs
i hinu mikilvæga starfi þeirra.
Breytingar á prófastaskipun í landinu og á þjónustu ein-
stakra prestakalla hafa orðið jjessar:
Séra Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur hefir verið skipaður
dómprófastur í Reykjavík i stað séra Friðriks Hallgrimssonar,
ei’ lét af því starfi hinn 1. desember s.l.
Séra Siyurjón Guðjónsson í Saurbæ hefir verið settur prófast-
'ii' í Borgarfjarðarprófastsdæmi i stað séra Þorsteins Briem.
Séra Bergur Björnsson í Stafholti var settur prófastur í Mýra-
prófastsdæmi i stað séra Björns Magnússonar, er fluttist til Rvík-
nr, sem áður getur.
Breytingar á þjónustu einstakra prestakaila eru ])essar helztar:
Séra Lárus Halldórsson var skipaður prestur í Flateyjarpresta-
halli i Barðastrandarprófastsdæmi.
Séra Jón Auðuns skipaður prestur við dómkirkjuna i Reykjavik.
Séra Leó Júliiiss-on skipaður prestur i Borgarprestakalli á
Mýrum.
Séra Finnbogi L. Kristjánsson skipaður prestur í Hvamms-
Prestakalli í Skag'afirði.
Séra Guðmundur Sveinsson skipaður prestur i Hestþingum
' Borgarfirði.
Óveitt prestaköll eru þessi:
1. Hofteigsprestakall í N.-Múlaprófastsdæmi, og annast prest-
urinn í Kirkjubæ þjónustu þess.
2. Mjóafjarðarprestakall í S.-Múlaprófastsdæmi, er sóknarprest-
urinn að Nesi í Norðfirði þjónar.
3. Eydalaprestakall í S.-Múlaprófastsdæmi. Því þjónar, sem
settur prestur, séra Róbert Jack.
4- Hofsprestakall i Álftafirði i S-Múlaprófastsdæmi, er séra
Róbert Jack þjónar ásamt sínu kalli.
Sandfellsprestakall i A.-Skaftafellsprófastsdæmi, er prófast-
urinn í Bjarnanesi þjónar.
*>• Kálfafeltsstaðarprestakall í A.-Skaftafellsprófastsdæmi, er
prófasturinn i Bjarnanesi einnig þjónar.
'• Oddaprestakall í Rangárvallaprófastsdæmi. Þetta presta-
kall losnaði í s.l. fardögum og verður væntanlega veitt inn-
an skamms. Því þjónar presturinn í Landeyjaprestakalli
til bráðabirgða.
3. Þingvallaprestakall í Arnesprófastsdæmi, sem þjónað er i