Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 46
228
Prestastefnan.
.Túní-Júli.
sameiningu af próföstunum i Árness- og Kjalarnessprófast-
dæmum.
9. Garðaprestakall í Borgarfjarðarprófastsdæmi losnaði nú í
fardögum og verður sennilega veitt innan skamms. Séra
Magnús Runólfsson annast þar þjónustu.
10. Sla'ðarhraunsprestakall í Mýraprófastsdæmi. Því þjónar
sem settur prestur séra Stefán Eggertsson.
11. Staðarhólsl)ing i Dalaprófastsdæmi, er prófasturinn i
Hvammi þjónar ásamt sínu kalli.
12. Breiðabólsstaðarprestakall í Snæfellsnesprófastsdæmi, er
losnaði i fardögúm, og hefir þjónustu þess enn eigi verið
ráðstafað.
13. Brjánslækjarprestakalt i Barðastrandarprófastsdæmi, er
losnaði nú í fardögum og enn er óráðstafað.
14. Hrafnseyrarprestakall i V.-Isafjarðarprófastsdæmi, er presl-
urinn á .Bildudal þjónar.
15. Staðarprestakall i Aðalvik í N.-ísafjarðarprófastsdæmi. Því
þjónar sóknarpresturinn að Stað í Grunnavik.
1 (>. Mælifellsprestakall í Skagafjarðarprófastsdæmi, sem þjón-
að er af sóknarprestinum í Glaumbæ.
17. Grimseyjarprestakall í Eyjafjarðarprófastsdæmi, og þjónar
því sóknarpresturinn i Ólafsfirði.
18. Hálsprestakall i S.-Þingeyjarprófastsdæmi. Því þjónar, sem
settur prestur, séra Björn 0. Björnsson.
19. Svalbarðs-þingaprestakall í N.-Þingeyjarprófastsdæmi, er
losnaði fyrir skömmu við lát séra Hólmgríms. Því er enn
óráðstafað.
Alls eru þá 19 prestaköll óveitt á landinu að þessu sinni, eða
einu fleira en síðastliðið ár. Þrjú þeirra munu verða bráðlega
veitt. í tveim eru settir prestar, en 14 er þjónað af nágranna-
prestum eða þjónustu óráðstafað í bili.
Tvær kirkjur hafa verið vígðar á synodusárinu: Hellnakirkja
á Snæfellsnesi þann 12. ágúst og Reyniskirkja í Mýrdal hinn 26.
maí s.l. .Báðar þessar kirkjur eru byggðar úr steini, hin prýði-
legustu og myndarlegustu lnis, er bera fagran vott um áhuga og
fórnfýsi safnaðanna. Þá mun einnig að mestu lokið smiði kirkn-
anna að Melstað og Asólfsskála, og verða þær sennilega vigðar
í sumar.
Kapella hefir verið reist að Voðmúlastöðum i Rangárvalla-
prófastsdæmi og mun verða fullbúin í sumar. Ennfrenmr hefir
verið endurreist kirkja að Miklaholti í Snæfellsnesprófastsdæmi,
og verður hún væntanlega einnig vígð í sumar. Guðslnis þessi