Kirkjuritið - 01.06.1946, Qupperneq 50
232
Prestasteí'nan.
Júní-Júlí.
kveöið að vcrja kr. 100 þúsund úr Prestakallasjóði til bygging-
ar væntanlegs kirkjuhúss í Reykjavílc.
Almennur kirkjufundur íslands var haldinn á Akureyri dag-
ana 9.—11. september s.l., og var forseti hans Gisli Sveinsson
sýslumaður, formaður undirbúningsnefndar kirkjufunda. Fund-
ur þessi var fjölsóttur að vanda, og voru þar flut tmörg erindi
og fyrirlestrar.
Aðalmál fundarins var bygging kirkjuhúss í Reykjavik, og
liefir það mál verið rætt áður hér á prestastefnunni og þvi
prestunum kúnnugt. Fjölmenn nefnd var kjörin á fundinum
til þess að kynna málið i byggðum landsins og afla fjár til
framkvæmdanna.
Ennfrennir var á fundi þessum allítarlega rætt um frumvarp
það um kirkjubyggingar, er Gísli Sveinsson bar fram á Alþingi
1944.
Samtimis var og á Akureyri lialdinn Aðalfundur Prestafélags
íslands.
Fundur presta o<j kennara var haldinn að Hólum i Hjaltadal
liinn 11. ágúst og þar rædd ýms þau mál, er sameiginlega varða
presta og kennara landsins.
Ennfremur voru á árinu háð nokkur kristileg' mót presta og
leikmanna, og voru mörg þeirra fjölsótt.
Kristlegt félag ungra manna og kvenna, svo og önnur kristi-
leg félög ungmenna, einkum í Reykjavík, störfuðu með svip-
uðum liætti og undanfarin ár
Sunnudaginn 19. ágúst voru sérstakar guðsþjónustur haldnar
i'm allt land til þess að fagna því, að' heimsstyrjöldinni var lok-
ið, en sá ægilegi liildarleikur hafði þá staðið nærfelt 6 ár og
haft í för með sér meira böl og þjáning en dæmi eru áður til
í sögu mannkynsins.
Kirkjuritið hefir komið út í sama formi og undanfarin ár
undir ritstjórn prófessors Ásmundar Gunðmundssonar og
prófessors Magnúsar Jónssonar.
Kirkjublaðið hefir einnig komið út hálfsniánaðarlega, auk
vandaðs jólaheftis, og mun nánar gerð grein fyrir útkomu
þess síðar á prestastefnunni.
Af hókum kristilegs og siðferðilegs efnis, sem út hafa komið
á þessu synodusári, má sérstaklega ncfna fíiblian i myndum.
Valdir kaflar úr Ritningunni af dr. Bjarna Jónssyni vígslubisk-
up ásamt myndum franska snillingsins Doré.
Vidalínspostilla, mjög vönduð og smekkleg útgáfa.