Kirkjuritið - 01.06.1946, Síða 55
KirkjuritiS.
Prestastefnan.
237
megi verða bezt fyrir komið á hverjum stað, þannig að hún
verði sem áhrifaríkastur þáttur í uppeldi barnsins.
Ennfrennir beinir Prestastefnan þeirri ósk til biskups, að hann
beiti sér fyrir því við frgeðslumálastjórnina, að framvegis verði
i skólum landsins fluttir fyrirlestrar um andleg og siðferðileg
mál og til þess valdir hinir liæfustu menn.“
Um kirkjuna og áfengsimálið hóf séra Magnús Guðmundsson
i Ólafsvík framsögu og lagði niegináherzlu á tvennt: Björgun
drykkjumanna og verndun æskulýðsins frá á'fengisbölinu. Um-
íæður voru allmiklar. M. a. las biskup upp bréf frá framkvæmda-
nefnd reykvískra kvenfélaga um áfengismál, þar sem leitað er
samstarfs við prcstastéttina um útrýmingu áfengisbölsins úr
landinu. Samþykkt var fundarályktun, sem hér segir:
1. „Prestastefnan tekur undir þær áskoranir, sem fram komu
á kvennafundi í Reykjavík 15. apríl s.l., að þvi viðbættu, að
i'agfræðileg rannsókn á áhrifum áfengisins fari ekki aðeins
fram í Reykjavík heldur uin land allt.
2. Prestastefna íslands beinir þeirri ósk eindregið til allra
landsmanna, að áfengi verði ekki um liönd haft í fermingar-
veizlum né öðrum mannfagnaði í sambandi við helgiathafnir.
Preststefnán 1946 óskar eftir þjóðaratkvæðagreiðslu, í síð-
asta lagi 1947, um hvort leyfa skuli innflutning áfengis, og telur
innflutningsbann áfengis sterkasta ráðið til bóta á þvi öngþveiti,
senx nú ríkir i áfengismálum þjóðarinnar.
Prestastefna íslands 1946 telur það ástand, sem nú ríkir í
áfcngismálum þjóðarinnar, eigi aðeins vansæmd, heldur
•'áskalegt siðgæði og lieilbrigði þjóðarinnar, og beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til allra presta landsins, að þeir vinni öflug-
fcga hver í sinu prestakalli gegn áfengisbölinu og leggi fram
sinn skerf lil þess að skapa það almenningsáht, sem telur of-
nautn áfengis vansæmandi frjálsbornum mönnum, og óskar þess,
að allir þeir, sem gegna ábyrgðarstörfum eða opinberum störf-
mn, séu bindindismenn.
Jafnframt skorar prestastefnan á ríkisstjórn og Alþingi að
g.löra sem fyrst og eigi siðar en á næsta liausþingi ráðstafanir
að draga verulega úr áfengisnautn þjóðarinnar og koma á fót
"auðsynlegum hælum fyrir ofdrykkjumenn.
Séra Hálfdan Helgason prófastur gjörði grein fyrir fjársöfn-
un barnaheimilisnefndar þjóðkirkjuunnar á siðastl. ári, og er
hún nú meiri en nokkru sinni fyr. Hefir séra Hálfdan lagt hina
mestu alúð við þetta starf.
Þá flutti Sigurður Birkis söngmálastjóri þjóðkirkjunnar er-
'ndi um nauðsyn söngskóla fyrir söngkennara, organista og