Kirkjuritið - 01.06.1946, Page 66
Júní-Júli.
Brot úr ferðasögu
frá Blaine, Washington, til Minneota í Minnesota-ríki í
júnímánuði 1917.
Það var á þriðja prestsþjónustu ári mínu í Blaine,
Washington, að bréf kom til mín í maímánuði 1917, frá
söfnuðunum íslenzku í Minneota-prestakalli í Minne-
sóta þess efnis að biðja mig, ef ég væri fús til þess, —
og fengi leyfi prestakalls míns þar til, að inna af hernli
millibils prestsþjónustu í Minneota og umhverfinu, um
tveggja mánaða bil, að afloknu kirkjuþingi, er þar átli
að haldast síðla í júnímánuði. Söfnuðirnir í Minneota-
umhverfi liöfðu ekki liaft fasta prestsþjónustu frá ár-
inu 1914, að dr. Björn B. Jónsson, sem þar hafði þjónað
í full tuttugu ár, varð prestur í Fyrsta lúterska söfnuð-
inum í Winnipeg. Millihilsþjónustu hafði séra Friðrik
Friðriksson (barnavinur) frá Reykjavík liaft með hönd-
um, en var nú fyrir nokkru, er hér var komið sögu,
farinn heim til Islands.
Ég lagði bréfið fyrir safnaðarfundi í Blaine og í Point
Robert, W,ashington, en þar voru fastasöfnuðirnir, sem
ég þjónaði, en auk þessara safnaða flutti ég' guðsþjón-
ustur og framkvæmdi prestsverk víða á norðanverðri
Ky rr ali af ss tr öndinni.
Söfnuðurnir gáfu mér hurtfararleyfi; tók ég því að
undirbúa mig undir burtförina, en í raun og veru átti
ég ekki heimangengt; en konan mín vildi, að ég gseti
setið kirkjuþingið, og með þessu móti opnaðist vegur til
þess. Ég fékk þær upplýsingar hjá stöðvarstjóra járn-
brautarfélagsins í Blaine, að farbréf frá Spokane, Wash-
ington, til Minneota kostaði $ 22,50, en farhréfið þurfti
ég' ekki að kaupa fyr en til Spokane kæmi, því að ég
j