Kirkjuritið - 01.06.1946, Qupperneq 70
252
S. Ó.: Brot úr ferðasögu.
Júní-Júlí.
ar við skildum, gaf hann mér nafnspjald sitt, en á því
stóð: Jacob Weiss, Cold Springs, Minnesota. Viku síðar
gat ég sent honum dollarann, sem liann svo góðfúslega
hafði lánað mér, — af góðvild hjarta síns. —
Þessi reynsla mín, ásamt atburðinum i Spokane,
Washington, sem fvr var að vikið, styrkti mig í trúnni
á liandleiðslu Guðs — og það, að yfir manni er vakað
af óþrotlegri föðurvernd, sem aldrei hreytist né þreytist.
Síðdegis þennan sama dag komst ég loks alla leið til
Minneota. Vigfús Anderson, aldraður heiðursmaður,
mætti mér á járnhrautarstöðinni og fylgdi mér heim
lil Gunnars Björnssonar ritstjóra og Ágústu konu hans,
en hjá þeim — á þeirra góða heimili — átti ég að dvelja,
meðan á þingi stæði. Var sem ég væri kominn í foreldra-
liús, eða til eldr.i svstkina, svo góð og umhyggjusöm voru
þau hæði. Fór það svo, að ég naut gestrisni þeirra í þá
tvo mánuði, sem ég dvaldi í umhverfinu.
Það var mikil og kærkomin breyting að koma í mann-
fagnaðinn og veizluhöldin, sem kirkjuþinginu voru
samfara, eftir hálferfiða og einmanalega ferð „vestan
frá hafi“, en þakklátur er ég fyrir reynsluna, sem mér
féll í hlut á leiðinni. Hún varð mér með öllu ógleynv-
anleg — og dýrmæt — á ýmsan hátt.
Sigurður ólafsson.