Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 71
Kirkjuritið.
Sumarbúðir við Winnipegvatn.
Bandalag lúterskra kvenna hefir nú byggt sumarbúðir í Húsa-
vik, 4 mílur suður af Gimli. Sumarbúðirnar voru vígðar sunnu-
daginn 7. júli, að viðstöddum íneira en 600 manns; þá hófst þar
uámskeið, sem við nefnum „Leadership Training Course“.
Milli 30—40 ungmenni ofan fermingaraldurs tóku þátt í þessu
námi. Við vorum 8 úr hópi presta, sem höfðum kennslu með
höndum. Tvær kennslustundir fyrir hádegi, hvíld, leikir og
sund, allt undir umsjón og eftir reglum um eftirmiðdaginn.
Skemmtiskrá, myndasýningar á kvöldin. Ljós slökkt kl. 10,30
siðdegis. Farið á fætur kl. 7,30 árdegis, miðdagsverður kl. 12
a hádegi, kvöldverðúr kl. 5, en „cacao“ og aðrar veitingar kl.
!!.30, að lokinni kvöldskemmtun.
L'm 28. júlí byrjar hressingartími fyrir yngri ungmenni, 8—14
l’ra. Guðræknisstund að morgni, en annars leikir, hvíld og sund
•il skiptis ú daginn. — Yfir 40 stúlkur taka þátt i því, en
drengir verða þar eingöngu næstu 10 daga á eftir.
Erum við fagnandi, að þetta mál er loks komið þetta langt
a veg. Byggingar fullgerðar og í notkun eru: Eldhús og mat-
salur (sem i sumar er einnig notaður til kennslu), hús starfs-
kvenna, er tekur 8 konur, engin skrifstofa þar. Tveir svefn-
skálar (drengja og stúlkna), hvor rúmar 40 rúm, hvort upp
af öðru, eins og um borð í skipi. Svo er dálítið hús, sjúkrahús, ef
einhver kynni að verða veikur. Öll börn og ungmenni ganga
l|ndir læknisskoðun, áður en farið er í sumardvölina. Aðal-
byggingin er enn óbyggð, efni hefir verið ófáanlegt, en mun nú
lást, og fé er til, bygging á þvi mun hefjast á þessu hausti. Þetta
— „Memorial Hall“ — verður helgað minningu þeirra, er féllu
1 hinu fyrra og síðara striði. — Það verður stór samkomusal-
1,111 með hækkuðum palli, rúmgóðum. Tvö hliðarherbergi verða
l'ar, annað bókaherbergi, hitt kapella með altari; þessi herbergi
lokuð, nema þegar þau eru notuð.
Mrs. Ólafsson og samherjar hennar hafa, með hjálp almenn-
lnSs, gert hér stórt verk. Trúum við, að með Guðs hjálp og
goðri stjórn muni þetta verða til mikillar blessunar fyrir æsk-
una — 0g vexti og viðgangi kirkjunnar nauðsynlegt.
(I'Jr bréfi frá Vesturheimi).