Kirkjuritið - 01.04.1947, Side 47
Ivirkjuritið.
Séra Ófeigur Vigfússon.
133
í játningu, hollustu og elsku til Krists. Hann hafði þá
einnig alla æfi verið honum „vegurinn, sannleikurinn og
lífið.“
Séra Ófeigur i Fellsmúla er nú liorfinn oss í fjarskann
mikla, þangað, sem hann liorfði jafnan vonglaður og trú-
arstyrkur alla æfi sína.
Ilérað vort og kirkja hefir misst einn sinn mætasta og
'héztá maim, en minning lians mun lifa ljúf og heið og
hjört meðal allra þeirra, sem honum kynntust.
Sveinbjörn Högnason.
Jónas .4. Sigurðsson: Ljóðmæli
Richard Beck gaf út. Winnipeg 1946.
Kirkjuritið hefir oftar en einu sinni flutt ljóð eftir séra Jónas
A. Sigurðsson prest í Vesturheimi, svo að hann mun lesendum
hess að góðu kunnur. Nú eru kvæði hans og sálmar komnir út í
vandaðri útgáfu, sem prófessor dr. Richard Beck hefir annazt
af smekkvísi og prýði. Þetta er allmikil bók, nær 309 bls. í stóru
broti. Henni er skipt í þætti, sem hér segir: 1. Ættjarðárkvæði
°S eggjana. 2. Sögukvæði og þjóðsagna. 3. Árstíða og náttúru-
lýsingar. 4. Ýmisleg kvæði. 5. Lausavísur. 6. Tækifæriskvæði. 7.
Eftirmæli og minningaljóð. 8. sálmar og andleg ljóð. 9. Þýð-
ingar. Kvæðin eru misjöfn að gæðum, eins og eðlilegt er, en yf-
irleitt vel kveðin og skipa höfundi tvímælalaust á hinn æðra
bekk íslenzkra sálda í Vesturheimi. Bezt þykja mér ættjarðar-
kvæðin, eftirmælin og sálmarnir. Kvæðið um séra Kjartan Helga-
son er t. d. ágætt, lýsingin sönn og snjöll. Höf. er eldheitur tilfinn-
ingamaður, og má einkum finna þess vott í ættjarðarljóðum hans.
Sendir hann okkur marga hlýja kveðjuna austur yfir hafið. Þessi
virðist mér einna fegurst:
Nú fer hugur minn heim, —
yfir höfin — um geim,
nú skal hávetrarnepjunni gleyma.
Nú er sumar um sæ,
nú er sólskin í bæ,
Sú er sóley í varpanum — heima. Á. G.