Kirkjuritið - 01.04.1950, Síða 31
HEFIR JESÚS ALDREI VERIÐ TIL?
99
eins og margir ofsatrúarmenn, sem fram komu á þeim
tíma meðal Gyðinga og voru aðallega pólitískir of-
stopamenn.
1 stuttu erindi verða ekki svo miklu máli, sem hér
um ræðir, gerð á nokkum hátt full skil, en aðeins stikl-
að á fáum aðalatriðum. Þá er fyrst að snúa sér að guð-
spjöllunum. Geta þau talizt sagnfræðileg heimildarrit eða
ekki? Eða eru þau eingöngu áróðursrit, sem ekkert er á
að byggja vegna ónákvæmni og virðingarleysis höfund-
anna fyrir réttri og hlutlausri frásögn?
Eins og kunnugt er, eru guðspjöllin í helgiritasafni
kirkjunnar 4. Upphaflega voru þau fleiri, en þegar valið
var í N.Tm., voru aðeins 4 þeirra tekin, sem hin beztu og
nákvæmustu. Þessi 4 guðspjöll, Matth., Mark., Lúk. og
Jóhannes, er álitið, að bókfærð séu í núverandi mynd
þeirra á árunum 70—110 e. Kr., og af þeim sé Mark. gspj.
elzt, eða ritað einhvem tíma á tímabilinu 66—70 e. Kr.
Það er því skráð 30—40 ámm eftir krossfestingu Jesú.
En af fræðimönnum er talið fullvíst, að höfundar þriggja
fyrstu guðspjallanna hafi haft fyrir sér eldra handrit, sem
hú muni glatað, en hver þeirra um sig bætt þar við og
breytt eftir eigin geðþótta og meiri þekkingu. Þessvegna
eru 3 fyrstu guðspjöllin kölluð Samstofna guðspjöllin, af
Því að þau byggja öll á sömu frumheimildinni. Af höf-
undum Samstofna guðspjallanna er Markús talinn merk-
astur sagnfræðingur og mest upp úr honum að leggja,
sem heimildarmanni. Enda er það strax sjáanlegt við
lestur þessara þriggja guðspjalla, að hver einstakur höf-
Undur hefir haft sinn tilgang með samningu þess. Matt-
heus skrifar fyrir Gyðinga; honum er mest í mun að
sannfæra þjóðina um, að hinn krossfesti Jesús hafi verið
sá fyrirheitni Messías, sem þjóðin hafi alltaf vænzt. Markús
skrifar fyrir heiðingja. Hans tilgangur er fyrst og fremst
að sýna alheimi, að mannkynsfrelsarinn sé fæddur, son-
hr Guðs allsherjar hafi stigið niður til jarðar. Lúkas skrif-
ar sitt guðspjall fyrir gríska lesendur, e. t. v. aðeins fyr-