Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 34
102
KIRKJURITIÐ
ingarár Jesú eftir stjörnunni, sem Mattheus segir, að
sézt hafi við fæðingu hans, og komst að svipaðri niður-
stöðu. Ennfremur segir, að Jóhannes skírari hafi fyrst
komið fram á 15. stjómarári Tíberíusar. Nú kemur sagn-
fræðingum ekki saman um, hvenær Tíberíus varð keis-
ari. Hann verður aðstoðarkeisari Ágústusar árið 12 eftir
okkar tímatali. Jóhannes á eftir því að hafa hafið starf
sitt árið 26. En Ágústus keisari deyr árið 14, og þá verð-
ur Tíberíus aðalkeisari. Ef reiknað er með því ártali, hefir
Jóhannes komið fram árið 28. Jóhannes starfaði sem kunn-
ugt er aðeins stuttan tíma. Sennilegt er, að í guðspjöll-
unum sé farið eftir valdatökutíma Tíberíusar árið 12.
Eftir því er Jesús fæddur árið 4, og hefir komið til Jó-
hannesar og skírzt 30 ára gamall, eins og guðspjöllin
segja, þá hefir það verið árið 26 eða 27. Þetta passar
líka við frásögn Jóhannesar, að Jesús hafi hafið starf
sitt, er 46 ár hafi verið liðin frá þvi að Heródes lét endur-
byggja musterið. En það gerði hann á árunum 19 og 20
f. Kr. Allt bendir þvi til, að Jesús hafi látið skírast af
Jóhannesi árið 26, þá 30 ára.
Þetta er nú öll skekkjan, 4 ár. En hverju er hún að
kenna? Hún er til orðin þannig, að í byrjun 6. aldar var
í Litlu-Asíu munkur, sem hét Dionysios og var kallaður
hinn litli. Hann dó í Róm árið 556. Jóhann I. páfi fékk
hann til að reikna út tímabilið með tilliti til páskahalds-
ins. Frá honum og hans reikningi er það komið, að Jesús
sé fæddur árið 754 eftir byggingu Rómaborgar eða árið 1.
En síðari tíma rannsóknir hafa sýnt, að sá útreikningur
stenzt ekki. En hverja þýðingu hefir þessi reiknings-
skekkja, hvað viðkemur persónu og lífi Jesú? Vitanlega
enga. Efast nokkur Islendingur um, að Jón Arason hafi
verið til? Enginn veit þó, hvenær hann var fæddur. Tvo
góða sagnfræðinga, Barða Guðmundsson og Pál Eggert
Ólason greinir þar á um 10 ár. Almennt er talið, að Jón
Arason sé fæddur 1484. Ámi Magnússon telur hann þó
fæddan fyrr, 1480. Ekki veit ég til þess, að þessi óvissa