Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 43

Kirkjuritið - 01.04.1950, Side 43
TRÚIN Á DAUÐANN OG DJÖFULINN 111 þetta, enda telur hann frjálslyndi að engu gagni í and- legum efnum eða þekkingu, heldur þurfi til þess blinda bókstafstrú. En nú er mér spurn: Hvers vegna ættum vér þá að vera að burðast með háskóla til að uppfræða prestsefni? Er t>á ekki bezt að snúa sér í þessu efni fyrir fullt og allt að karlinum á kassanum og öðrum sams konar stríðs- mönnum Drottins, sem miklu betri skil þykjast kunna á öllu guðsorði en nokkur prófessor, veifandi Biblíunni eins °g kylfu kringum sig og sannandi, hvað sem er, með bókstaf? Það mundi spara mikla fyrirhöfn að láta þessa menn taka við öllu prestsstarfi á landi hér. Og ekki þjást þeir af „lágkúrulegri skynsemsku og skrifborðsvizku“, svo að notað sé orðalag sr. Sigurbjarnar. Þegar guðsríki er komið í þetta æskilega horf, sem þessa menn dreymir um, þarf engan Búa biskup eða Sig- Urbjörn prófessor, heldur munu þessir prelátar ganga í einfaldleik hjartans út á torgið og setjast við fætur karls- ins á kassanum, þar sem þeir geta orðið fyrir uppbyggi- legum helgunaráhrifum af hinum ástúðlega „almúga“- nianni, ,,sem kann Biblíuna sína“. 1 hinum gáfulegu hugleiðingum sínum um Gósenland „saurlífi", kemst sr. Sigurbjörn inn í það trnhræsninnar. Gósenland trúhræsninnar, þar sem hann kann verulega vel við sig. Meðal annars kemst hann að þeirri heimspekilegu niðurstöðu, að „saur- Hfi“ hafi enn sem komið er ekki verið talin nein veruleg lyftistöng siðmenningar. Hver var að halda þessu fram? En sleppum því. Það má athuga þessa kenningu ofurlítið betur. Fyrst þarf að vita, hvað hann kallar „saurlífi". Kaþólska kirkjan taldi allt ástalíf saurugt og vanheilagt, en áleit það þó illa nauðsyn. Miklir guðfræðingar þeirrar kirkju, eins og t. d. Órigenes, gerðu róttækar ráðstafanir til að deyða þennan djöful í holdinu, og slíkt hið sama ættu allir

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.