Kirkjuritið - 01.04.1950, Síða 84
152
KIRKJURITIÐ
veður. Fundurinn ákvað, að einstakir deildarmenn færu í heim-
sókn til héraðs-, gagnfræða- og húsmæðraskólanna á félags-
svæðinu og flyttu þar fyrirlestra á vetri komanda. Hefir slíkri
starfsemi verið haldið uppi af hálfu deildarinnar á undanföm-
um árum við vaxandi vinsældir skólanna.
Næsti fundarstaður var ákveðinn á Akranesi. Deildarmenn
nutu margs konar fyrirgreiðslu og alúðar sóknarprestsins á
Borg, sr. Leós Júlíussonar.
Stjóm Hallgrímsdeildar var endurkjörin. Skipa hana þess-
ir menn: Sr. Magnús Guðmundsson, Ólafsvík, formaður, sr.
Sigurjón Guðjónsson, Saurbæ, ritari og sr. Þorsteinn L. Jóns-
son, Söðulsholti, gjaldkeri.
Sigurjón Guðjónsson.
Saurbœjarkirkja á Hvalfjarð’arströnd 70 ára.
7. ágúst s.l. var haldin hátíðarguðsþjónusta í Saurbæjar-
kirkju í tilefni af 70 ára afmæli hennar. Að vísu var hinn rétti
afmælisdagur kirkjunnar 3. sd. í jólaföstu 1948, og hafði þá
afmælisundirbúningur farið fram, en sakir illveðurs þann dag
var afmælisguðsþjónustunni frestað.
Kirkjan er byggð 1878, af sr. Þorvaldi Böðvarssyni, og er
nú elzta kirkja í Borgarfjarðarprófastsdæmi. Er hún enn all-
snoturt hús, og í henni góður hráolíuofn. —
Við guðsþjónustuna var kirkjan þéttskipuð fólki. Aðalræð-
una hélt sóknarpresturinn, sr. Sigurjón Guðjónsson prófastur.
Lagði hann út af sama texta og sr. Þorvaldur Böðvarsson, er
hann vígði kirkjuna fyrir fullum sjötíu áram. Aðrir ræðumenn
vora: dr. theol. sr. Friðrik Friðriksson og sr. Jón M. Guðjóns-
son á Akranesi, en sr. Magnús Runólfsson flutti bæn. Sálma-
söngnum stjórnaði Þorvaldur Brynjólfsson organisti á Mið-
sandi. Með kirkjukór sóknarinnar sungu þau hjónin Jóhann B.
Guðnason sóknarnefndarformaður á Akranesi og kona hans fru
Sigríður Sigurðardóttir, sem er úttvarpshlustendum að góðu
kunn fyrir söng sinn. — Guðsþjónustan öll fór hátíðlega fram.
— Að henni lokinni komu kirkjugestir saman til kaffidrykkju
á Ferstiklu. Var þar sungið og ræður haldnar.
Sigurjón Guðjónsson.