Kirkjuritið - 01.04.1950, Síða 85
Fréttir.
Lyder Brun guðfræðiprófessor í Osló
andaðist síðastliðinn nýársdag, á 80. aldursári.
Hann var um sína daga einn af fremstu kennurum norskra
guðfræðinga og brjóst fyrir heilbrigðum og sönnum kristin-
dómi með þjóð sinni. Hann var afkastamikill rithöfundur, og
enu sumar bækur hans frábær vísindarit. Mesta rit hans og
aÖ líkindum hið bezta er Jesu Evangelium, og ætti hver prest-
Ur á íslandi að eiga. Svipað má segja um skýringarrit hans
Um Lúkasarguðspjall og I. Pétursbréf. Síðarnefnda ritið kom
út skömmu fyrir dauða hans. Engin ellimörk er á því að sjá,
fremur en voru á honum sjálfum. Ritstjóri Kirkjuritsins kynnt-
ist honum fyrst persónulega haustið 1948 í Ósló og dáðist að
brennandi áhuga hans og þátttöku í kristilegu lífi og starfi.
Hann unni íslandi og þráði það að koma hingað. En nú
kvað hann það um seinan. Hann fagnaði því, hve kirkja ís-
lands væri frjálslynd og guðfræðileg vísindi við háskóla okk-
ar lítt bundin kennisetningum.
Háskóli Noregs og kirkja minntist hans sem eins sinna
úeztu manna.
^ýr erkibiskup í Uppsölum.
Yngve Brilioth biskup frá Váxjö er nú orðinn erkibiskup
Svía í Uppsölum í stað Eidems. Hann er atkvæðamaður mik-
úl. Tengdasonur N. Söderbloms.
prestsvígsla.
Sunnudaginn 26. febrúar vígði biskupinn dr. Sigurgeir Sig-
urðsson Emil Björnsson, kandídat í guðfræði, prestvígslu. Tekst
hann á hendur prestsþjónustu fyrir nokkurn hluta Fríkirkju-
safnaðarins í Reykjavík samkvæmt beiðni hans. Þessi safn-
aðarhluti nefnist Óháði fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík og
greiðir hann eftir sem áður gjöld til Fríkirkjunnar. Formaður
er Andrés Andrésson klæðskerameistari.
p
rrumvarp um afnám prestskosninga.
Alþingismennimir Gylfi Þ. Gíslason og Sigurður Bjarnason
úera enn fram frumvarp til laga um afnám prestskosninga. Er
l?að nú í samhljóðan við álit meiri hluta Kirkjuráðs. Samkv.
frumvarpinu skipar forseti íslands presta, en áður skal leita
Urnsagnar biskups, héraðsprófasts og viðkomandi sóknarnefnd-