Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1955, Page 7

Kirkjuritið - 01.02.1955, Page 7
BOÐSKAPUR TIL KIRKJU ÍSLANDS 53 hefir kirkjan ein í sumum löndum eftirlit með kristindóms- fræðslunni. En síðan hefir hér orðið mikil breyting á, jafnvel þannig um skeið, að hyllzt var til að ganga fram hjá prestum við skipun í þessa stöðu. Á þessu þarf að verða gagngerð breyting í áttina til þess, sem áður var. Geta prestar sjálfir að líkindum ráðið nokkru um það, bæði með því að taka fúslega að sér þetta starf, er það býðst þeim, og með sívakandi fræðsluáhuga, sem væntan- lega myndi fyrr eða síðar greiða þeim veg í skólanefnd. Einnig mundi það víða mjög æskilegt, að prestar tækju að sér kristindómsfræðslu í skólum að meira eða minna leyti, eftir því sem við yrði komið og í samvinnu við kennara. Samfara eftirliti með kristindómsfræðslunni verður að vera mikið og sjálfstætt starf að henni. Það á að hefjast með börnunum sem yngstum. Bezta fyrirkomulagið á því hygg ég yfirleitt sunnu- dagaskóla, er presturinn heldur ekki sjaldnar en á messu- dögum sínum. Sums staðar munu börnin svo fá, að hann getur kennt þeim einn. En betra er að eiga góða að- stoðarkennara, og kann það einnig að leiða til samstarfs á öðrum sviðum. Reynslan mun sanna það, að börnin laðast snemma að sunnudagaskólanum. Og margra ára vera þeirra í sunnudagaskóla er mjög ákjósanleg, áður en sérstakur fermingarundirbúningur hefst. Af starfsskýrslum yðar sé ég, að tíminn, sem þér verjið th fermingarundirbúnings, er mjög misjafn, og ætti yfir- ieitt að vera miklu meiri. Engum tíma fáið þér betur varið. Séu fermingarbörnin mjög mörg, má ekki hika við að skipta þeim í flokka í undirbúningsstundum, svo að bau hafi full not fræðslunnar og samvistanna. Skyldi hvert barn ganga til spurninga að minnsta kosti í tvo vetur fyrir fermingu sína. Presturinn verður að kynnast Persónulega hverju barni og heimili þess og leggja fram alla krafta sína til þess að koma því til nokkurs þroska 1 kristnum dómi. Kristnin verður að nema land með hverri

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.