Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1955, Qupperneq 11

Kirkjuritið - 01.02.1955, Qupperneq 11
BOÐSKAPUR TIL KIRKJU ISLANDS 57 hans gjörspillt og flestum búna eilífa glötun. Mannkynið sé á hraðri leið til sjálfstortímingar, en Guðs ríki of fjarri til þess, að það verði nokkru sinni stofnað hér á jörð í raun og veru. En þetta er að bregðast þeim boðskap, sem Jesús flutti lærisveinum sínum í upphafi og vildi, að þeir breiddu út meðal mannanna: Guð er kærleiksríkur faðir, sem elskar alla, bæði vonda og góða, réttláta og rangláta. Mennirnir eru börn hans, og meðal þeirra vill hann stofna ríki sitt hér á jörðu. Guðs ríki er komið í nánd, já, það er þegar komið og býr í hjörtum manna. Daglega eiga mennirnir að biðja um þetta ríki: Komi ríki þitt. Verði vilji þinn svo á jörðu sem á himni. Boðskapur Jesú var fagnaðarerindi kærleikans og hins eilífa lífs og kröfur hans himinháar. Vér verðum allir að rannsaka þá kenningu, er vér flytj- um hverju sinni. Ef innsti kjarni hennar er ekki gleði- boðskapur, þá er hún ekki heldur kristindómur. Vér eig- um eins og fyrstu lærisveinar Krists að boða af fullri djörfung komu Guðs ríkis hingað á jörð og hjálpræði hans hverri mannssál til handa. Allt vol og víl á að vera fjarri prédikun vorri. Vér eigum að sjálfsögðu að vera raunsýnir, en jafnframt bjartsýnir. Guð kærleikans lifir, og frá honum, fyrir hann og til hans eru allir hlutir. Hann vill gefa oss ríki sitt hingað, grundvalla það hér á jörð. Og það mun standa um tíma og eilífð. En vér verð- um að veita því viðtöku með því að taka sinnaskiptum og trúa fagnaðarerindinu. Allur boðskapur vor verður að uiótast af trúnni á sigur hins góða að lokum, sigur kær- loikans, sigúr Krists, sigur Guðs.“ Þótt hér sé um að ræða bréf til presta og prófasta, á Þetta Hirðisbréf biskupsins erindi til fleiri manna. Því hefi eg talið rétt, að Kirkjuritið vekti athygli á því svo vel, sem verða mætti.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.